Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 9

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 9
toga, er skipi málum þjóðanna lil varanlcgs friðar, varanlegrar farsældar. Og svo mikilvæg tímamót virðast nú í vændum, að vér höfum ástæðu til að vænta hans — frá sögulegu sjónarmiði séð. — Helgar hátíðastundir eru einkar vel fallnar til sameiginlegrar íhugunar, sameiginlegrar bænar. Máttur hugsana og hjartans bæna er mikill. Notum þessa jólahátíð, viuir mínir, til þess að tengja í óeigingjarni samúð sál við sál, hugsun við hugsun. Pví íleiri strengir sem saman eru stiltir, því sterkari verður samkliðurinn. I3ví fleiri sem sameina sálir sínar í einni hugsun á sama tíma, þvi máttugri verður hún. Pess vegna biðjum vér alla þá, eldri og yngri, er þessi orð vor lesa eða heyra, að snúa sér í alvarlegri íhugun og innilegri bæn til guös um komu mannkynsleiðtogans, — friðarhöfð- ingjans, er semur varanlegan frið á jörðu. Flestir munu vaka við jólaljósin að fornri venju fram yfir miðnættið hina helgu nótt, og viljum vér því óska þess, að þessi stutta, sameiginlega íhug- unar- og bænastund vor allra mætti byrja þegar k 1 u k k a n s 1 æ r 12 n ó 11 i n a h e 1 g u. Og bjóðum svo í guðs nafni hver öðrum: GLEÐILEG JÓL! Guðm. Guðmundsson. 7

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.