Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Blaðsíða 93
✓
Ur „Mánaljóðum".
Eflir Rabindra Nalli Tagore.
I. LOKIN.
Nú er mér orðið mál að fara, mammal Nú fer ég frá þér.
Á morgun kemur kyrlát afturelding, dimman dvín, og þú
breiðir út faðminn, yíir barnið þitt lilla í vöggunni. Og þá
segi ég: »Litli drengurinn þinn er farinn!«--— Mamma,
ég er að fara — alfarinn!
Eg skal bregða mér í ljúfan blæ sem leikur um þig, ég
skal breytast í blægárana á vatninu, þegar þú laugar þig, —
og kyssa þig, kyssa þig aftur og aftur.
Þú skalí heyra mig hvisla, þegar hvast er á nóttunni og
regnið bylur á blöðunum, en þú ert gengin til hvilu. Og
leiflrið, sem glampar inn um opinn gluggann, skal flytja þér
hlátur minn í herbergið þitt.
Og ef þú liggur andvaka og hugsar um litla drenginn
þinn langt fram á nótt, — þá skal ég syngja fyrir þig frá
stjörnunum: »Sofðu, mamma, sofðu!«
Eg skal laumast að rúminu þínu í reikulum tunglsgeislum
og halla mér að brjósti þér, er þú blundar.
Eg skal breyta mér i draum og laumast inn um örmjóa
rifuna milli hvarma þinna, — inn í dýpsta draumblund
91