Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Qupperneq 37
fjölskyldu, er hlítir forsjá hans, sem þeir starfa fyrir, Þetta
ætti líka að geta orðið til þess, að bræðralagshugmyndin
kæmi berlega fram í verki, svo að þeir fyndu, að þeir væru
í raun og sannleika eitt bræðrafélag.
f) Hver félagsmaður ætti að skoða það sem skyldu sina
að reyna að komast fyrir, með hverjum hætti liann getur
orðið helzt að liði, og láta svo bræðralagið njóta góðs af
þeim bendingum, sem hann er fær um að gefa í þeim efn-
um. Þess vegna álítum vér, að það væri i alla staði æskilegt
að félagið ætti sér einskonar aðalstöðvar, er tæki á móti
slikum bendinguni. Hver félagsmaður ælli og helzl að lála
þess gelið, hverjum erfiðleikum slarfsemi hans á aðallega að
mæta, sömuleiðis hverjum röksemdum og andmælum menn
halda helzt fram gegn honum. Gott væri að hann léti þess
einnig getið, hver þau atriði eru, sem honum veitti erfiðast
að skýra eða halda þannig fram, að þau reynist sann-
færandi. — Alt þetta væri æskilegt, að félagsmenn vorir
athuguðu vel, ef vera mætti að þeir gætu orðið til þess að
hjálpa hverir öðrum í þessum efnum. En jafnvel þólt þeir
gætu ekki gert sér von um að fá frekari skýringar frá öðr-
um, þá gæti þó félagið í heild sinni haft gott af því að
styðjast i þessum efnum við reynzlu einstaklinga sinna.
Yonandi verða öll þessi atriði rædd miklu ýtarlegar síðar
af mönnum, sem eru þeim vanda vaxnir. Ritgerð þessi er
að eins lauslegt ágrip og að mestu leyti rituð fyrir þá, sem
hafa í hyggju að ganga í bræðralagið, svo að þeir fái nokk-
urn veginn Ijósa hugmynd um það: tilgang þess og starf-
semi. Vér viljum svo enda hana með nokkrum leiðheining-
um fyrir þá, sem vilja ganga i félagið, leiðbeiningum, sem
geta ef til vill orðið til þess að spara bæði umsækjendum
og embættismönnum félagsins ómak.
35