Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Blaðsíða 26
menn nolckuð við liið »andlega andrúmsloft«, sem sjálfur
meistarinn mun ílytja með sér i margfalt ríkari mæli, er
hann kemur.
Nú erum vér þegar farnir að virða fyrir oss hina aðra
starfsemi vora, er vér höfum nefnt
HINA INNRI STARFSEMI.
Þau eru tvö atriðin, sem öll hin innri starfsemi verður
reisl á sem sé: sérstakir eiginleikar eða hugarfar og eining.
Vér getum ekki séð að unt sé að gera ljósari grein fyrir
fyrra atriðinu en með því að birta hér kafla úr fyrirlestri,
sem Mrs. Annie Besant flutti um komu mannkynsfræðarans
og vér höfum þegar minst á. Annie Besant minnist þar á
eðliskosti eða sérstakt hugarfar, sem mönnum er. nauð-
synlegt lil þess að verða færir um að þekkja eða réttara
sagt: viðurkenna og hneigjast að hinum mikla leiðtoga, er
hann kemur. »Því hvernig«, spyr hún, »geta menn átt það
víst að verða færir um að þekkja hann þegar i slað, er
hann kemur fram á meðal vor?«
»Eins og ég sagði verður kenningin sem hann ílylur
að koma mönnum í skilning um, hver hann er. En hvernig
ætli vér gelum skilið eða fallist á kenningar hans, ef hann
sýnir oss hlutina frá alt öðru sjónarmiði en vér erum vanir
að líta á þá, eða, ef hann sýnir oss einhvern andlegan
sannleika frá alt annari hlið en oss liefur komið til hugar
að athuga liann? Fyrsta og æðsta skilyrðið er að leggja sem
mesta rækt við hið andlega eðli vort, ekki síður en við vits-
muni vora og tilfmningalíf. Því ef hið andlega eðli vorl
hefur náð verulegum þroska, hlýtur oss að veila auðvelt að