Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Síða 15
stuttri helgistund, lil þess að biðja hann að blessa alt, sem
vér störfum fyrir hann og í hans nafni.
6) Vér teljum það sérstaka skyldu vora að reyna að
viðurkenna og bera lotningu fyrir mikilleikanum, hvar sem
hann birtist og í hverjum, sem hann kemur í Ijós, og — að
svo miklu leyti sem oss er unt, — reyna að vera í sam-
vinnu við þá, er oss virðist komnir á liærra stig en vér í
andlegum efnum«.
íJess her fyrst og fremst að gæla, að bræðralag þetta
er ekki að eins Guðspekisbrœðralag, lieldur er þvi ætlað að
ná til allra, sem hafa þá von eða trú, að mikill andlegur
leiðtogi komi innan skamms fram á meðal þjóðanna, og
það stendur því á sama hverrar trúar eða lifsskoðana menn
eru. Þegar hinn mikli leiðtogi kemur, þá kemur hann til
alls mannkynsins. Það hefur auðvitað viljað svo til, að vér,
sem erum í Guðspekisfélaginu, höfum orðið með hinum
fyrstu, sem fengu boðskapinn um komu hans; en það er
fremur fyrir það, að á meðal vor eru nokkrir rnenn, sem
standa i sambandi við þær voldugu verur, sem einar gátu
látið slíkan boðskap frá sér fara, en að vér höfum að
einhverju leyti verðskuldað það öðrum fremur. Vonandi
nær bræðralag vort »Stjarnan í austrk að breiðast út um
allan heim og það stendur opið öllum þeim mönnum, sem
hafa þessa sameiginlegu von um komu hins mikla leiðtoga.
Allir eru því boðnir og velkomnir að ganga í þetta bræðra-
lag, ef þeir á annað borð vilja leggja hönd á plóginn og
greiða lionum veg, því að hann rekur engan úr þjónustu
sinni. Það er þvi, eins og gefur að skilja, engan veginn nauð-
synlegt né neilt undir því komið, að menn fallist á kenn-
ingar þær, sem allur þorri félagsmanna Guðspekisfélagsins
13