Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Blaðsíða 22
ekki um hann né kenningar lians fyrirfram. Og i öðru lagi:
að koma þeirri skoðun á framfæri, að það sé hugsanlegt,
að mikill andlegur leiðtogi rísi upp á meðal vor, áður langt
um líður. Og þegar hann er svo kominn, verður hver
maður sjálfur að skera úr þvi, hvort hann getur skoðað
liann sem andlegan leiðtoga mannkynsins.
Og vér verðum að reyna að liaga öllum undirbúnings-
störfum samkvæmt j)essu, hvorl sem vér viljum vekja al-
hygli á komu leiðtogans með samræðum, opinberum fyrirleslr-
um eða ritum, sem vér teljum ráðlegl að gefa út. Þvi, ef
vér gætum lítt hófs i staðhæfingum vorum og kröfum úl á
við, gelum vér vísast áll á hættu að spilla fremur en bæla
fyrir þeim málsstað, sem vér vildum fegnir vinna alt það
gagn, sem í voru valdi slendur. Samfara því sem vér reyn-
um að sannfæra aðra menn um likurnar fyrir komu hins
andlega leiðloga, verðum vér einnig að taka fult tillit til
skoðana annara manna. Og það er ef til vill með tilliti til
jiessa, að mildi hefur verið valin sem einn af hinum þremur
eðliskostum, sem félagsmenn vorir eiga að kosta kapps um
að innræta sér. Og það er ekkí að eins vegna þess, að liann
sem vér væntum, er sjálfur meislari mildi og miskunnsemi,
heldur og sökum þess, að hinir mentuðustu menn og konur
um allan heim eru i þann veginn að segja skilið við þær
trúarskoðanir eða stefnur, sem láta reiði og ofstæki koma í
Ijós sem eðlilegar alleiðingar skil'tra skoðana í trúarefnum.
Þeir timar, sem fara í hönd, verða tímar einingar og
bræðralags. Og þeir tímar hefjast með komu hins milda
leiðtoga eða fræðara mannkynsins. þess vegna ber oss að
innræta oss bæði mildi og umburðarlyndi í trúarefnum, í
stað þess að hlúa að hinum gagnstæðu eðlislöstum. Kær-
leikurinn er hinn afkastamesti brautryðjandi i heimi, að
20