Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 20

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 20
' staðhæfing sannfært menn um komu leiðtogans. Hann verður að »standa og falla« með þeirri kenningu, sem hann llytur. »Hvernig«, spyr Mrs. Annie Besant í fyrirlestri um komu mannltynsfræðarans, er hún flulti fyrir skömmu í Queen’s Hall í Lundúnum, — »hvernig geta menn þekt mannkynsfræð- arann?« Og hún svarar því og segir: »Menn fá þekt hann á þeirri kenningu, sem hann hefur að ílytja.« Alt og sumt, sem þetta bræðralag vorl eða annar félagsskapur fær gert i þessum efnum, er að eins að fá menn til þess að hlýða hleypidóma- og hlutdrægnislaust á þann boðskap, sem hann hefur að llytja. Þetta er í raun og veru svarið við þeirri spurningu, sem vér getum gert ráð fyrir að ýmsir muni koma fram með, sem sé: »Ef menn eiga að geta þekt hinn andlega leiðtoga á kenningum lians, hver er þá ástæðan til þess að reynt er að undirbúa komu hans?« Svarið er í fám orðum þetta: Það er nauðsynlegt að stuðla að því að kenningar hans verði metnar að verðleikum af samtiðarmönnum hans. Það er að minsta kosli nauðsynlegt að þeir, sem hlýða á hann, hlýði ekki á hann fullir mótþróa og hleypidóma. Þvi enginn fræðari, hve mikill sem hann er, fær notið sín, þar sem hann mætir að eins hleypidómum og heimskulegu hatri og ofsóknum. Auðvitað fá kenningar hans rutt sér til rúms fyr eða siðar, á þvi getur enginn vafi leikið. En það verður ef til vill ekki fyr en margar kynslóðir eru liðnar undir lok, hatrið og ofsóknirnar hafa lagt sig, og hann er fyrir löngu horfinn aftur til hinna ósýnilegu heima. Sannleikurinn er sá, að vér berum engan kviðboga fyrir því, að allur þorri manna aðhyllist ekki kenningar hans nokkru eftir daga hans; en oss langar lil að stuðla eitthvað að því, að sam- tíðarmenn hans þekki sinn vitjunartíma, svo að liann eigi 18

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.