Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Page 24

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Page 24
irnar á, að hatur verður ekki upprætt með hatri en að eins með kærleika; að samfara andlegri tign er auðmýkt, mildi og hiðlund; að öll siðbót, sem á að reynast sönn og affara- sæl, verður að vera reist á sjálfsfórnaranda en ekki upp- reisnaranda; og að hin sanna göfgi í lífinu er ekki komin undir hinu ytra, heldur liinu innra gildi. Þetta eru hin algengu byrjunaratriði; þó verða þau aldrei of oft brýnd fyrir mönnum, sízt nú á timum. Því nú má svo heita, að alveg gagnstæðar lífsskoðanir séu efstar á bugi. A vorum tímum er það eigingirnin og hlífðarlaus samkeppni, hernaðar- og viðskiftavaldastefnur, sem ráða að kalla má lögum og lofum með þjóðunum. Á vorum tímum er það skoðuð sem heilög skylda að halda hverjum réttind- um vorum fram til streitu og leggja sem mesta áherzlu á alt hið ytra, á þjóðerni, trúarjátningar o. s. frv. En þegar að er gáð fer afstaða manna gagnvart hinum andlega leið- toga eftir því, hverjum lífsskoðunum þeir fylgja. Og ef eftir- væntingarnar verða ekki leiddar i rétta átt, ef menn fá ekki gert sér rétta hugmynd um hvernig hinn mikli fræðari muni koma fram á meðal vor, eru miklar líkur til að vonbrigði þeirra geti orðið svo mikil, að þeir snúist öndverðir gegn honum, í stað þess að gerast einlægir fylgismenn hans. En til þess að menn skuli ekki halda, að það þurfi einhverja sérstaka þekkingu til þess að geta þekt hinn andlega leið- toga mannkyn^ins, er hann kemur, þá viljum vér vekja athygli manna á því, að alt og sumt sem til þess þarf, er að lesa enn þá einu sinni helgirit vor. Yér þurfum sem sé ekki annað en kynna oss hin heilögu rit mannkynsins til þess að geta gengið alveg úr skugga um, hvernig hinir and- legu leiðtogar hafa komið fram og hverskonar kenningar þeir hafa flutt. Og þegar vér höfum áttað oss á þessu, er 22

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.