Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Page 33

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Page 33
Alstaðar hlýtur koma leiðtogans að liafa einhver sérstök áhrif. Allir félagsmenn vorir verða því að haga starfsemi sinni, hver á sínu sviði, með tilliti til framtíðarinnar, stuðla að því, eftir megni, að koma hins andlega leiðtoga fái haft scm mesta blessun i för með sér á sem ílestum sviðum. Þess vegna er það og tekið skýrt fram, að bræðralag þetta »hefur engin félagslög«. Því þar sem félagið vill leitast við að undirbúa komu hins andlega leiðtoga í öllum löndum, þá verða félagsmenn þess að hafa fullkomið hugsana- og athafnafrelsi af hálfu félagsins. Ef þeir eiga að geta sigrast á hinum ýmsu erfiðleikuni, sem þeir hljóta að eiga við að stríða, þá verða þeir að fá notið sín og haga undirbúnings- slarfi sinu eins og bezt á við á hinum ýmsu sviðum. Það er því óliælt að segja að félagsskapur vor hefur tvö skilyrðin, til þess að geta komið að tilætluðum notum, sem sé: samtaka krafta og fjölhreytta starfsemi, sem stefnir að einu og sama takmarki. Og vér höfum gilda ástæðu til þess að vona, að oss vanti ekki þriðja skilyrðið, sem sé: viljamagnið, sem knýr lil starfa, og hrindir áformunum i framkvæmd, því að hinn göfugi tilgangur þess og takmark ælti að glæða viljamagnið. Það lætur nær sanni að segja, að lífæð veraldarinnar slái örar en ella af óljósri eftirvæntingu um konni hins andlega leiðtoga. Er þá ekki hugsanlegt, að félagi, sem sér komu hans fyrir og leitast við að greiða honum veg, takist að samansafna og leiða magti eftirvæntingarinnar þannig, að það lcomi að verulegri og varanlegri notum en ef enginn tæki sér fram um að leiða það í rétta átt? Það er þetta, sem bræðralag vort, »Sljarnan í austri«, vill að minsta kosti leitast við að gera. Og það mun að likind- um leggja enn meira kapp á það, er það hefur gert sér verulega ljósa grein fyrir þessum eftirfarandi atriðum: Pað 31

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.