Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 85

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 85
byrði sína kallaði ég lil hans í hæðnisrómi: »Þarna kemurðu þá með sannleikann á bakinu.« Allir, sem heyrðu orð mín, skellihlógu og ég hló með. En hann leit raunalega til mín, svo raunalega, að augnaráð hans gekk í gegnum mig, eins og ég væri lagður í gegn með spjóti, og sagði: mÞú skalt ganga út um allan heim og bera sannleikanum vitni, þangað til ég kem aftur.« Svo hélt hann áfram og mannfjöldinn á eftir. En ég slóð eftir agndofa og vissi hvorki í þennan lieim né annan. Ég gekk inn í liús mitt. Ég hafði engan frið, enga eirð. Eg gekk úr einu herberginu í annað og undi mér hvergi. Ég fór svo út og gekk eina af götum Jerúsalemsborgar á enda eftir aðra, og loksins komst ég út fyrir borgina. En svo brá undar- lega við. Éað kom alt í einu yfir mig undarlegt myrkur, líkast eins og þegar Scirocco-vindurinn sveipar svartast um mann mökkva eyðimerkurmóðunnar. Ég leit upp til að átta mig, en sá ekki neitt. Ég leit upp til sólarinnar. Hún sást eins og dökkur blóðhnöttur, en bar enga birlu. Eitthvað ósljórnle^t of- boð kom yfir mig. Ég bljóp áfram í blindni, eins og ég ætlaði að flýja myrkrið, þangað til ég rak höfuðið svo fast i eittlivað, að ég reikaði út af og féll í ómegin. En þegar ég rankaði við aflur og fór að álta mig, sá ég að ég slóð undir krossi saka- mannsins, sem ég hafði spoltað um morguninn — sakamanns- ins — sannleikskonungsins — sjálfs frelsarans.« Og nú slundi hann svo þungt, að mér heyrðist tién í kring- um okkur taka undir með stunu hans. Ég sat eins og á nál- um. Saga hans lagðist á mig eins og farg. Ég var nú orðinn viss um að maðurinn mundi vera með fullu viti Eftir litla bið hélt hann áfram og var bás eins og málróm- urinn kæmi upp úr gröf: 83

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.