Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Page 89

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Page 89
sjálfur farið um allan heiminn, gengið land úr landi og lokið þannig einni umferð um heiminn á liverri öld. Eg kunni hvert mál, hvar sem ég kom. Eg rannsakaði alslaðar hinar fornu lieilögu bækur þjóðanna. Og alstaðar hef ég fundið opinberun guðs, sannleika hans ritaðan með fingri lians speki og algæzku. Alstaðar meiri og minni brot af kenningum sannleikskonungs- ins, hvar sem ég hef farið. Sumstaðar að vísu liulin í hjúpi líkinga og goðasagna; en á æðri stigum voru þau birt í háleitri speki, sem að síðustu náði fullkomnun sinni í kenn- ingu sannleikskonungsins. Og hann var líflálinn fyrir hana. Og mennirnir hafa undið hana til og umsnúið lienni, rangfært hana og afbakað alt til þessa dags. Eg hef hlýtt boði hans. Ég hef leitað og fundið og vilnað. Heiðingjarnir hafa látið mig óáreiltan. En hetjur kirkjunnar liafa dæmt vitnisburð minn trúarvillu. I3eir liafa lokað mig inni í píslarklefum rannsóknar- réltarins, og lagt á mig pislarfæri sín, en ekkert áunnið. Sann- leikurinn verður ekki píndur til lyga. Þeir hafa rejrnt að svelta mig til bana í dýílissum sínum, en á hverju máli hefur staðið hjá mér brauð og ostur, ávexlir og bikar víns. Sannleikurinn verður ekki svellur í hel. Peir hafa lagt mig á bál, en fjötr- arnir liafa brunnið utan af mér, og ég hef gengið af bálinu heill á liófi. Sannleikurinn verður ekki brendur á báli. Þeir hafa iokað mig inni í ramgerðustu dýflissum, en þær hafa sprottið opnar fyrslu nóltina, fjötrarnir fallið af mér, og ég gengið út lieill á liófi. Sannleikurinn verður ekki lokaður inni. fig ber byrði guðs sannleika — og enginn mannlegur mátlur er fær til þess að spyrna á móti sannleika guðs og sannleiks- konungsins lil lengdar.« Hann hafði talað sig lieitan. Hann varpaði öndinni mæðu- lega og hélt svo áfram: »Eg er nú í tutlugasta sinni á ferð minni um heiminn. Og 87

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.