Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 19
IDUNN
Lífsviðhorf guðspehinnar.
273
unarhæfileikum listamannsins. Og það kunna að koma
fram mótbárur gegn slíkri skoðun. Því að hversu fáir
eru ekki málarar, myndhöggvarar, byggingameistarar eða
tónsnillingar ? Hvernig er hægt að segja að venjulegur
maður skapi, úr því að hann getur aðeins lært að meta
verk sannra listamanna þegar bezt gengur. Svar mitt
er það, að sköpun er ekki aðeins starf þeirra manna,
er vér köllum listamenn. Umhverfi vort verður að kenna
oss að nota ekki orðin: sköpun og listamaður í jafn-
þröngri merkingu og tíðkast hefir. Einhvern fagran vor-
morgun kunnum vér að ganga um yndislega fjallshlíð,
alþakta grænu laufi. Fáum dögum síðar er hlíðin öll
blómskrýdd. Litlu, smágerðu jurtirnar unnu ekki á neinu
listaverkstæði og þær höfðu engan kennara. Samt sem
áður sköpuðu þær listaverk, þar sem blóm þeirra eru.
Stundum eru þessir litlu starfendur nefndir illgresi, og
þó sýna þeir í starfi sínu fullkomna kunnáttu listamanns-
ins. Hverjir eru meiri listamenn en litlu börnin, sem
með fullkomnum yndisþokka hvílast eftir liðinn leik?
Hver einasti maður, karl eða kona, getur skapað eitt-
hvað fagurt — hugsun, tilfinning eða verk — sem sýn-
ir hinn dulda Iistamann, enda þótt aðrir sjái hann ekki.
Skaparinn sýnir í sköpunarverki sínu fegurð hinna
guðdómlegu fyrirætlana og hinn óendanlega yndisleik
veraldarskaparans, guðs. Alt, sem í kringum oss er, er
hráefni, sem oss er ætlað að vinna úr hið fullkomna
listaverk. Vonir vorar og draumar, sorgir og örvænting,
eru litirnir á litaspjaldi voru. Ef vér fengjum eitt ein-
asta innblásturs-augnablik, þá sæjum vér þegar í stað
hvar vér ættum að standa, til þess að geta málað skjót-
lega þær sýnir, tilfinningar og fyrirbrigði, sem hafa vakn-
að í huga vorum. Efnið til að skapa úr er alstaðar fyr-
ir hendi, hvort heldur eru litir regnbogans handa mál-
18