Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Blaðsíða 27
IÐUNN
Lífsviöhorf guöspekinnar.
281
sæmd, er dómari yfir lífi sínu og sá, er umbunar
eða refsar.
Sérhver maður getur haft örlögin í hendi sér, ef hann
hagnýtir sannindi þessi í lífinu. Hann getur fundið frið
hið innra með sér, þrátt fyrir storma efasemda og
girnda. Hann getur fundið aflið hið innra, þrátt fyrir
alla ósigra fortíðarinnar. Hann getur fundið innra Ijós,
þrátt fyrir myrkrið, sem umkringir hann. Því að maður-
inn er sjálfur vegurinn, sannleikurinn og lífið. En þessi
leyndardómur verður honum því að eins ljós, ef hann
reynir af alvöru og einlægni að hætta að heimta, en
leggur stund á að skapa og gefa.
Hún er engin smáræðis uppgötvun, þessi þekking: að
ef guð hafi heim skapað, þá búi og sá sköpunarmáttur
hans í oss; aó svo framarlega sem guð sé kyrð og ei-
lífur friður, búi og friður og sæla allra himna í oss. Ef
vér vitum það, ekki óljóst, heldur með óbifandi sann-
færing, að allir vorir dýrustu draumar munu eitt sinn
rætast, þá leysum vér úr læðingi vizku, kraft og fegurð
þá, er í oss býr. Það er sú vitneskja, er hin forna
speki lætur öllum þeim í té, er leita hennar. Það er sú
þekking, sem vekur sigurfögnuð í brjóstum sannra guð-
spekinga. Því að til er eitt orð, sem .betur lýsir guð-
spekinni en langar útskýringar og það orð er: sigur.
Sá, er lifir samkvæmt guðspekinni, er ætíð fagnandi hið
innra, enda þótt ytri þjáningar séu hlutskifti hans. Vér,
sem höfum leitast við að lifa samkvæmt guðspekinni,
höfum nú þegar fundið nokkurn frið og sigurgleði. Og
vér vildum veita öllum heimi þátttöku í gleði vorri.
Þess vegna erum vér guðspekifélagar og förum um víða
veröld, til þess að benda mönnum á guðspekina —
Þenna gleðiboðskap lífsins.
Nokkrir guðspekinemar þýddu.