Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Síða 42
296
Annie Besant.
IÐUNN
austri* stofnað 11. jan. 1911. Það er alþjóðafélag, sem
náð hefir mikilli útbreiðslu um víða veröld. Tilgangur
þess félags var að undirbúa komu meistara, andlegs leið-
toga, frelsara allra manna, Krists, sem allir félagsmenn
vænta mjög bráðlega. En forseti þessa félags var J.
Krishnamurti, fóstursonur Annie Besant. J. Krishna-
murti er hámentaður ungur Indverji, sem stundað hefir
nám í bestu háskólum Englands og Frakklands. í barn-
æsku dýrkaði hann Shri Krishna. Allir, sem hafa séð
hann, eru sammála um það, að þróttmeiri göfgi og kær-
leikur búi honum í brjósti en í nokkrum öðrum manni,
sem þeir hafa séð. Skarpskygni hans hefir alla tíð ver-
ið við brugðið, ljómanum í augum hans og geislandi
hlýjunni í viðmóti hans. Næstum yfirnáttúrleg fegurð, ró
og yndi býr í öllu fasi hans.
A fimtíu ára afmæli guðspekifélagsins, sem haldið var
dýrlegt í Adyar 1925, skeði það 28. des. að viðstöddu
miklu fjölmenni úr flestum öllum löndum heims og eftir
vitnisburði þess, ^ð mannkynsfræðari, heimsmeistari tal-
aði þar nokkur orð í fyrsta sinn fyrir munn lærisveins
síns, J. Krishnamurti. Einn Islendingur, séra Jakob
Kristinsson, var þar viðstaddur og hefir hann lýst at-
burðinum í ræðu og riti. Þetta stóð yfir aðeins í nokk-
ur augnablik, en fólkið varð gagntekið af elsku og lotn-
ingu. Nú er sagt, að þessi andlega göfgi sé orðin var-
anleg með Krishnamurti, heimsmeistari »sá sem koma
skal«, sé enn einu sinni mitt á meðal vor á jörðúnni,
til þess kominn að kenna og hjálpa yngri systkinum
sínum. Hann hefir þegar hlotið nokkra fylgismenn. Og
nokkra helstu forvígismenn guðspekistefnunnar hefir
hann valið sér að postulum: Annie Besant, C. W. Lead-
beater og fáeina aðra. Sennilegt er að J. Krishnamurti
verði höfundur nýrra trúarbragða þegar fram líða stund-