Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Page 70
324
Vefarinn mikli frá Kasmír.
IÐUNN
að gera sér það ljóst, að ýmislegt getur það verið í
ritlist þjóðarinnar, sem teljast megi merkileg menningar-
fyrirbrigði, þó ranglátt sé að skipa því á bekk með
fullþroska list. Það sem okkur vantar tilfinnanlega eru
gáfaðir og mentaðir rithöfundar, tápmiklir menn og víð-
sýnir, sem veitt geti blóði hins nýja tíma í æðar skáld-
sagnalistar vorrar. Og út frá því sjónarmiði tel ég Hall-
dór Kiljan Laxness hafa gefið íslenzkum bókmentum svo
stórt og glæsilegt fyrirheit, að alt sé vinnandi til þess,
að hann þurfi eigi að flýja bókmentir vorar, svo sem
nú lítur helst út fyrir að muni verða.
7. desember 1927.
Tómas Guðmundsson.
Biblía stjórnmálamanna.
(Sigurd Moel).
I.
Fyrir fjórum öldum, seint í júní árið 1527, andaðist
Niccolo Machiavelli. Hann var 58 ára gamall er hann
lézt, — einmani, gleymdur af flestum, vonsvikinn og
beiskur í hug. Um mörg ár hafði hann engan þátt tekið
í opinberum málum.
Fyr á árum hafði hann verið ættborg sinn — Flor-
ens — hinn ötulasti og trúasti þjónn og um hríð mátti
hann sín all-mikils. Hann hafði um skeið haft á hendi
yfirstjórn borgarhersins. Einnig hafði' hann verið fulltrúi
Florensborgar við hirðir ýmsra af þjóðhöfðingjum Ítalíu