Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 75
IÐUNN Biblía stjórnmálamanna. 329 staðið í slímabraki þjóðmálanna. Nú var eftir að vinna málminn úr reynslu þeirra ára og skipa henni niður í fast fræðikerfi. Upp úr þessu einverustarfi varð svo til höfuðrit hans: Þjóðhöfðinginn (II Principe). Þó var það ekki rannsóknargleðin ein, sem knúði Machiavelli til að rita bókina. A því er enginn vafi, að höfundurinn stefndi að ákveðnu marki. Bókin átii að sýna alþjóð yfirburði og stjórnhyggindi hans sjálfs. Hún átti að ryðja höf. veg til þátttöku í opinberum málum á ný. I auðmýkt tileinkaði hann rit sitt Medicea-ættinni — þeirri sömu ætt, er hafði svift hann embætti og látið hann sæta pyntingum. Olánið elti hann eins og fyr. Jafnskjótt og hann hafði áunnið sér traust höfðingjanna, veltust þeir úr völdum. Valdasól Medicea gekk til viðar og Florens varð lýð- veldi á ný. Machiavelli ól þegar nýjar vonir í brjósti. Fólkið hlaut að muna honum dygga þjónustu frá fyrri dögum. — En það leit út fyrir að enginn myndi svo Iangt aftur í tím- ann. Þegar veita skyldi embætti það, er hann áður hafði setið í um 14 ára skeið og rækt með heiðri og sóma — var gengið fram hjá honum. Þetta gerðist í júní 1527. — Skömmu seinna var hann liðinn. II. Æfisaga Machiavelli’s er harmsaga. Hans eigin fyrir- ætlanir og metorðadraumar urðu að engu. Og heitasfa ósk hans og von — vonin um sameining Ítalíu — rætt- ist ekki. Hann dreymdi stóra drauma um dáðir og af- rek, en varð að láta sér nægja að skrifa bók um þessa hluti. Hann dó einmana, vonsvikinn og heillum horfinn.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.