Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Qupperneq 78
332
Biblía stjórnmálamanna.
IÐUNN
Og jafnvel þótt sá þekkingarauki skyldi reynast blekk-
ing ein — hve margir höfundar kunna þá list: aö blekkja?
III.
Til þess um síðir að komast að efninu — hvað er
þá að segja um þessa frægu bók? Hvað fjallar hún um?
Hvers konar verðmæti hefir hún að geyma?
Machiavelli segir sjálfur í tileinkun sinni, að bókin
hafi að bjóða »lærdóm um athafnir mikilla manna, en
þessa lærdóms hefi ég aflað mér með langri reynslu
og við eljusama sögurannsókn®.
Þessa lýsingu getum vér áréttað með því að segja,
að bókin hefir inni að halda Machiavelli’s eigin athuga-
semdir við og skýringar á athöfnum þessara miklu manna.
Þessar skýringar eru það einkum, er gefa 'oókinni gildi.
Fyrir þær verður hún eins konar kenslubók handa þjóð-
höfðingjum, eða — snúið á mál vorra tíma — kenslu-
bók handa stjórnmálamönnum.
Bók sinni hefir Machiavelli skift í marga kafla og
eru sumir þeirra, eins og t. d. kaflarnir um hernað og
hernaðarlist, orðnir nokkuð úreltir og draga lítt að sér
athygli vora. Aftur eru aðrir kaflar, sem eru síður tíma-
bundnir. Urlausnarefni eins og þau, hvernig vér getum
unnið oss traust annara manna, hvernig vér getum trygt
oss völd og úirðingarstöður, hvernig vér eigum að um-
gangast vini og óvini, ef vér viljum koma ár vorri fyrir
borð, hvort betur borgar sig grimd eða mildi, fals eða
einlægni, dygðir eða lestir — alt eru þetta afriði, sem
við koma sambúð vorri og viðskiftum við aðra menn.
Og vegna þess, að mennirnir taka litlum breytingum,
þótt aldir renni, en hins vegar trúarjátningar, tízku-
sannindi, hégiljur og hleypidómar eru sífeldum mynd-