Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Side 12
206
Alþingishátíðin 1930.
IÐUNN
vakningar. Ekki verður heldur nein vakning til án
boðskapar.
II.
Ég hygg ao Alþingishátíðin standi flestum fyrir hug-
skotssjónum sem minningarhátíð fyrst og fremst. Þess
vegna er það, að flestar þær tillögur, sem fram hafa
verið bornar, hafa stefnt í þá átt, að dregin verði upp
sem dýrðlegust mynd af liðnu lífi þjóðarinnar, um leið
og gefin yrði eins glögg yfirsýn yfir nútíðarhagi vora og
verða má. Hvorttveggja þetta er auðvitað hin mesta
nauðsyn og seint of vel brýnt. — En sízt af öllu má
þó gleyma því, sem fram undan er.
Eg gat þess áður, að segja mætti að hlutverk þjóðar
vorrar væri að eins mjög í byrjun. Alt það bezta væri
eftir. Að vísu er þetta einungis trúa mín, — en fyrir
samskonar trú er öll lífsþróun orðin til. — Þó fortíð
geti verið glæsileg og samtíðin jafnvel ánægjuleg, þá er
þó ekkert það til, sem eins er lokkandi og hinn ókomni
tími, sem breiðir út faðminn á móti öllum þeim óskum
og vonum, er orðið hafa útlægar og aldrei mátt rætast.
Því er það ákveðin sannfæring mín, að alt beri að
gera, sem unt er, til þess að Alþingishátíðin megi, bæði
beint og óbeint, verða þjóð vorri sem öflugastur orku-
gjafi á hinum komandi öldum.
Þess ber að minnast, að verði Islendingum hér lífs
auðið í önnur þúsund ár, sem allir munu óska að
hamingjan gefi, þá munu niðjar vorir halda aðra slíka
hátíð, þegar þar kemur sögunni. Ætti það þá ekki að
vera oss nokkurt metnaðarmál, að framsýni vor og fyrir-
hyggja yrði ekki minni en þeirra feðra vorra, er oss
hafa búið í hendur hin síðustu þúsund ár? Og ætti það
ekki að vera vort athyggjuverðasta stórmál að gera enn