Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Blaðsíða 25
ÍÐUNN
Alþingishálíðin 1930.
219
Alt hið göfugasta í eðli þjóðar vorrar er fóstrað upp
í ósnortinni helgi íslenzkrar náttúru. Er því síst fjar-
stæða að ætla, að einstæð tign og fegurð Þingvalla
mætti vekja vora vandræktustu stofnun til meiri vegs,
festu og hreinleika en verið hefir hin síðustu ár. —
Hitt er heldur engin fjarstæða, að margvíslegar minn-
ingar, sem þar svífa yfir vötnunum, gætu orðið þing-
mönnum vorum til hollrar sáluhjálpar: vítin til varnaðar,
en ágætin til eggjunar og fordæma.
Enn er tími til framkvæmda í máli þessu. A almenn-
■um þingmálafundum úti um land getur þjóðin skorað á
þingið að taka málið til meðferðar á ný og það þegar
á næsta vetri. Slíkum áskorunum myndi ekki verða
neitað, ef þær væru að eins nægilega almennar, og
gæti þá þjóðaratkvæðagreiðslu verið lokið fyrir 1930.—
Að vísu er loku skotið fyrir, að þinghús verði reist fyrir
þann tíma, en það er heldur ekkert höfuðatriði. Væri
engu síður æskilegt, að lagður yrði hornsteinninn ab
hinu nýja þinghúsi á aðal-hátíðisdeginum sjálfum.
Þinghald gæti svo farið fram í Reykjavík sem áður,
þar til byggingunni væri lokið, og væri þó markinu náð.
Vakni þjóð vor til nýrrar hugsjónabaráttu, sem von-
andi er, og þá helzt fyrir áhrif Alþingishátíðarinnar,
munu ekki mörg ár líða eftir 1930, að hún ekki hefjist
handa og krefjist framkvæmda í máli þessu. Það eru
því einungis svefnleg mistök, að leitast ekki fyrir um
vilja hennar á réttum tíma.
Þingflutningurinn er að vísu tilfinningamál öðrum
þræði. Hrein og vakandi þjóðernistilfinning leggur hon-
um lið, en þó einnig og engu síður heilbrigð skynsemi.
Það hefir verið sagt, að engu ánægjulegri minningar
væru tengdar við Þingvelli en Reykjavík. Það má vel
rétt vera. En Alþingi var háð á Þingvöllum, bæði í