Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Blaðsíða 84
278
Ástir Jónasar Hallgrímssonar.
IÐUNN
16 ára, og ]ónas Hallgrímsson frá Steinsstöðum, 20 ára
piltur í Bessastaðaskóla, sem tók stúdentspróf næsta vor.
Ferðafólkið hefir farið Stórasand, því Kjalvegur var
alveg lagður niður þá. Lestin hefir að líkindum farið frá
Kalmanstungu og norður yfir Blöndu á fjöllum á sama
degi. Síra Gunnar og lestamenn hans hafa átt nóg með
að gæta hesta og farangurs yfir Blöndu, sem þar er
mikið vatnsfall, en Jónas Hallgrímsson gætt jungfrú
Þóru, bæði yfir Blöndu og aðrar ár. Þessa er getið í
kvæðinu Ferðalok: »Hélt ég þér á hesti í hörðum
straumi«. Nógar straumár aðrar getur það átt við, eins
og Geitlandsár, Héraðsvötn, Norðurá vestan Öxnadals-
heiðar. Fólk kynnist fljótt á ferðalagi, og það er líklegt,
að hugir Jónasar og Þóru hafi runnið saman, þegar
hann var að hjálpa henni yfir Blöndu. Við Galtará hefir
lestin áð og tjaldað. Það er líklegt að Þóra, svo ung
og óvön ferðalögum, hafi verið ákaflega eftir sig eftir
dagleiðina daginn áður; ef til vill legið þangað til lestin
var lögð upp, og þá hafi Jónas hjálpað henni til að kom-
ast af stað. »Greiddi ég þér lokka við Galtará«. — Galtará
rennur litlu fyrir austan Blöndu; áin er lítil; þar er
grösugt við ána, nógur hagi handa ferðahestum og vatn til
drykkjar. Hún rennur samhliða Blöndu og vestur í hana
nokkru fyrir neðan vöðin. Galtará er ekki á Kjalvegi.
Ferðalok halda áfram: »Tíndum við á fjalli | vorum
tvö saman, | blóm í hárri hlíð«. Þetta hefir mér fundist
vera á Öxnadalsheiði, einhversstaðar nærri Bakkaseli.
Þar hafa þau verið einum degi síðar, eftir morguninn
við Galtará. »Hlógum við á heiði, | himinn glaðnaði 1
fagur á fjallabrún« er sömuleiðis á Öxnadalsheiði, því
frá Arnarvatnsheiði og þangað norður er engin önnur
»heiði« til, sem farið er um. En á Arnarvatnsheiði verður
ekki talað um fjallabrún.