Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Page 22
216
Alþingishátíðin 1930.
IÐUNN
yrði þjóðinni yfir höfuð slíkt kappsmál sem vönduð og
fögur sýning á öllu því, er að þeim efnum lýtur.
Mætti og um leið minna á nauðsyn listasýningar, því
þar er einnig að skapast annar sá geisli, sem brjótast
mun að fullu innan skamms út um víða veröldu.
Ahugaleysið í þessum efnum sýnir máske allra bezt,
hvei'su þjóð vor enn metur Jítils sín andlegu verðmæti.
Þegar henni dettur í hug að fara að sýna sitt bezta,
man hún betur búsáhöld, veiðarfæri og sokkaplögg en
Heimskringlu sína eða Passíusálmana, þótt vonandi sé
að hún gleymi sér ekki gjörsamlega.
Vegna þessarar reynslu má óttast, að á Alþingis-
hátíðinni verði einnig mest skákað fram stjórnmálamönn-
um einum og embættalýð, sem að vísu er sjálfsagt í hófi,
en þó ekki svo, að fyrir því gleymist sjálfir hinir sönn-
ustu merkisberar þjóðernis vors og menningar. Þjóðin
á fyrst og fremst kröfu til að fá að sjá þá og heyra.
Fagrar minningar myndu vaxa upp af þeim kynnum og
aukin trú á ýmsa möguleika í baráttu næstu þúsund ára.
Því ekki er það barátta Framsóknar, Ihalds eða verka-
manna, sem framtíðarhagur vor veltur mest á, heldur
er það sú barátta, sem kemur fram í list Einars ]óns-
sonar og Einars Benediktssonar, en sem þó kanske
allra átakanlegast birtist í snild og andagift dr. Helga
Péturss.
Einn stjórnmálaleiðtogi vor hefir sagt, að hér í landi
væri mikið mein að »siðleysi kunningsskaparins*. Sá
hinn sami mun vafalaust verða mikils ráðandi um fyrir-
komulag og afdrif hinnar væntanlegu hátíðar, og er það
ekki lítils vert, ef hann gæti sem bezt séð við því, að
blær þess siðleysis kæmi henni hvergi nærri. Munu
allir góðir íslendingar leggja honum þar lið.
/ bróðurhug munu þeir allir vilja stuðla að því, að