Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Page 100

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Page 100
294 Ritsjá. IÐUNN síðari koslurinn tekinn — og það virðist höf. hafa gert — verðum við áreiðanlega að taka stéttahatrið með, og fjáir þá ekki að æðr- ast eða flýja upp í prédikunarstól, þótt það stingi upp höfðinu við og við. Annars er tæplega um hreint stéttahatur að ræða í þessari bók. Hjá flestum höfuðpersónum sögunnar á andúðin gegn konsúlnum rætur sínar í einkamálum, að meira eða minna Ieyti — t. d. hjá Úlfhildi, Geirlaugu og Þórði lækni. Inn í þenna þjóðfélagsróman hefir höf. sem sé ofið ástum og einkamálum allskonar — ef til vill til þess að geðjast fjöldanum og gera söguna Iæsilegri. Við þessu er auðvitað ekkert að segja. Lífið er margslungið og fer eigi ávalt beinar brautir. En þá þarf þetta fvent að vera þann veg saman ofið, að það styðji og styrki hvað annað og efli áhrifamátt sögunnar. Það má ekki verka tvístrandi eða toga hvað á móti öðru. En hér verður einmitt sú niðurstaðan. Tvíveðrungurinn í þessari sögu, milli stefna og einkamála, pólitíkur og ásta, virðist mér draga úr áhrifum hennar. Hún verður léleg ástasaga vegna þess, hve mjög hún snýst um þjóðfélagsmál. Hún verður einnig léleg þjóðfélagsádeila vegna þess, að einkamálin grípa inn, dreifa athyglinni og lama athafnaþrótt sumra persónanna. Þórður læknir verður t. d. fyrir því óhappi að trúlofast dóttur konsúlsins um það leyíi sem baráttan milli þeirra hefst. Og þessi slysni verður undirrótin að óförum hans. — Hér að framan hefir aðallega verið dvalið við þá hlið bókar- innar, er að þjóðfélagsmálum veit. Það lá beint við, því frá mínu sjónarmiði er það tilætlun höf., að þar eigi að leita þungamiðju hennar. En sjálfsagt má líta á bókina einnig frá annari hlið. Hvernig er sagan sögð? Er hún veigamikið skáldrit eða ekki? Hvernig hafa mannlýsingarnar tekist? O. s. frv. Frá þeirri hlið skoðað er sumt vel um bókina. Frásögn höf. er yfirleitt létt og lipur og sagan er fjarri því að vera leiðinleg aflestrar. Höf. er athugull á smámuni hversdagslífsins og ytri fram- komu fólksins. Af persónulýsingum hefir konsúllinn tekist langbezt. Hann er markaður skörpum dráttum og eina persónan f sögunni, sem festist í minni lesandans. — Annars er sagan nokkuð misjöfn. Fyrri hluti hennar virðist dálítið óvandvirknislega skrifaður. Frá- sögnin streymir að vísu létt úr penna höf. og það er Iíf og fjör í stílnum. En nokkuð virðist skorta á þá listrænu einbeitingu, sem sker burtu alt sem er óþarft og heldur því einu, sem bregður ljósi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.