Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Page 157
IÐUNN
Bækur.
151
allri er mjög í hóf stilt, svo það ætti ekki að fæla neinn
frá bókinni. Auðvitað má maður ekki gleyma því, að einnig
hér á landi eru til menn, sem engu fást til að trúa um
Rússland, nema það sé eitthvað um þrælavinnu, trúarof-
;sóknir eða hungursneyð í Ukraine. En fyrir þá er bókin
vitanlega ekki skrifuð, heldur fyrir menn með nokkurn
veginn óbrjáluðu viti. Alla slíka menn er óhætt að hvetja
til að lesa hana. Þeir munu ekki verða fyrir vonbrigðum.
Hvað sem fólk annars kann að hafa að athuga við H. K.
Laxness — og það er víst mikið og margt — þá hefi eg
þó engan heyrt halda því fram, að hann kynni ekki að
skrifa. En mér er nær að halda, að hann hafi aldrei
skrifað betur en suma kafla' í þessari bók. Lesið upphafs-
kaflann og kaflann um verksmiðjuna í Ráðstjórnarríkj-
unum. Eg vildi t. d. sjá framan í þá móður, sem les frá-
sögn hans um smábarnaheimilin án þess að kenna vls í
brjósti.
Þá má og fastlega ráða öllum, sem áhuga hafa fyrir
íslenzku máli, ekki sízt orðabókahöfundum og nýyrðasmið-
um, til að kynna sér þetta rit. Hvergi í því rakst ég á út-
lent orð, þótt efnið freisti víða til að nota þau. Bókin morar
af nýyrðum eða að minsta kosti orðum, sem ég minnist ekki
að hafa séð fyr. Hér er ekki rúm til að nefna, nema örfá
dæmi: Flugsýn, fjarúd, funakollur (Brushoved), depurð,
samvirkt og sunduruirkt þjóðfélag, samnýtur stíll (Funkis)
kurnarabragur, verkból. Mörg nýyrðanna sýna glögglega, að
höf. er flestum hugkvæmari og snjallari að þýða á íslenzku
erlend orð og hugtök, er allir þeir, sem skrifa um efni
frá nútímanum, eru í stöðugum vandræðum með.
Á. H.
Porsteinn Erlingsson: S a g ni r J a ko b s g a m I a .
Reykjavík 1933.
Sifjar Þorsteins Erlingssonar við hina beztu þjóðsagna-
ritara eru löngu kunnar. Ölafur Davíðsson benti þegar fyrir
aldamót á frásagnameistarann Þ. E. I formála þjóðsagna
sinna, og síðar gaf Þ. E. út hið kunna sagnakver sitt. En
mönnum kom á óvænt, er nú fyrir nokkru — um tuttugu
;áruni eftir dauða Þ. E. — kom út allstór liók með sögum,