Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Qupperneq 165
IÐUNN
Bækur.
15»
1931). Verður fróðlegt að sjá, hvað hann hefir meira £
pokahorninu. Á. H.
tslenzkar smásögur eftir tuttugu og tvo
höfunda. Valið hefir Áxel Guðmundsson. Rvik
1933. Otgefandi: Ólafur Erlingsson.
Þessari bók er ætlað að vera sýnishorn íslenzkrar smá-
sagnagerðar síðari tíma. Eru i henni alls 22 sögur, ein
eftir hvern höfund. Byrjað er á Jónasi Hallgrímssyni
(Grasaferð) og endað á H. K. Laxness (Nýja island).
Við það verður að kannast, að í bók þessari eru margar
góðar smásögur. Þarna eru — auk þeirra, er nefndar voru
. sögur eins og Vordraumur Gests Pálssonar, Heimprá
Þorgils Gjallanda, Marjas Einars H. Kvaran, Pegar ég var
á fregátunni eftir Jón Trausta og Síðasta fullið eftir Sigurð
Nordal, svo að eins fáar séu nefndar. Um hitt má vitanlega
lengi deila, hversu gott sýnishorn íslenzkrar smásagnagerðar
þessi bók er, skoðuð sem heild. Sumum af þessutn „sög-
um“ er naumast hægt að gefa nafnið smásögur. Má nefna
það til, sem tekið er í bókina eftir Jón Thoroddsen, Jó-
hann Sigurjónsson og Sigurjón Friðjónsson, án þess að eg
viiji með þessu varpa nokkurri rýrð á þessa ágætu höf-
unda. Er lítt skiljanlegt, hvers vegna er verið að seilast
eftir þeim höfundum, er sama og ekkert liggur eftir af
þessu tagi, þar sem gengið er fram hjá mörgum, sem hafa
afrekað miklu meira, bæði að vöxtum og gæðum, í þessari
grein. í þessu sambandi vil ég þó taka undan einn höf-
und, sem hefir fengið rúm í bókinni, þótt hann fengist
litt við sagnagerð. Það er Stephan G. Stephansson. Hann.
á þarna smásögu: Fráfall Guðmundar gamla stúdents, sem
mátti ekki missa sig. Hún er svo góð, að vafasamt verður
að teljast, hvort nokkur önnur tekur henni fram. Stephan er
kunnur Islendingum sem ljóðskáld eingöngu, og er ekki
vitað, að hann hafi fengist við aðrar greinir skáldskapar
svo nokkru nemi. En þessi saga og sumt annað, er sést
hefir frá honum á prenti, bendir til þess, að hann hafi
verið engu ósnjallari á óbundið mál en rímað. Væri annars.
fróðlegt að fá að vita, hvort hann muni hafa látið mikið
eftir sig í handriti.
1 þessari sýnisbók hafa nokkrir fulltrúar yngri kyn-