Hlín. - 01.10.1902, Page 14
14
mœb', þrenskonar sigti, fyrir mjólkina, rjómann og á-
irnar, smérverkunqrspaða, þvottabusta, fötur o. fl., og
svo smérílát, kúta (danska), sem.taka 112 pund ensk,
eða ferkantaða trékassa, sem taka helmingi minna.
Slikir kassar eru alment notaðir í Ameríku fyrir út-
flutt smér til Englands, og reynast vel; þeir ættu að
vera ódýrari en kútarnir, og þeir rúmast betur í flutningi.
Ennfremur þarf til smórgerðar smérlit og reglulegt smér-
salt o. fl.
Fitumælirinn er eitt af þeim áhöldum, sem alveg
eru ómissandi; hann er til þess að mæla fituna í mjólkinni;
en hann er nokkuð dýr, ef hann er áreiðanlegur, og
því réttast fyrir menn að eignast hann í samlögum,
til að byrja með í öllu falli, enda getur það vel dugað.
Hinir mörgu yfirburðir, sem skilvindan hefir fram
yfir öll önnur áhöld við að skilja rjóma frá mjólk, gerir
hana hið eftirsóknarverðasta mjólkuráhald fyrir hvern
þann, sem býr til smér. Og enginn, sem á annað borð
er við bú, og hefir 1 eða fleiri kýr, gerir sjálfum sér
rétt til með því að vera án hennar. Nokkrir helztu
kostir skilvindunnar eru þessir: Smérið getur orðið og
á að verða bæði mikið meiia og jafnframt betra og út-
gengilegra, og er það ef til vill aðalkosturinn. Undan-
renningin verður ljúffengari og heilnæmari til fóðurs og
manneldis en köld mjólk og súr; það eru færri áhöld
að þvo og þurka daglega og þar af leiðandi minni vinna,
en það, að minka vinnuna, er hið sama sem að auka
tekjurnar, svo framarlega sem tíminn er peningar.
Skilvindurjómi er álitinn ögn sykurminni en annar
jafnferskur rjómi, og undanrenningin að sama skapi heldur
sykurmeiri. — Eitt hundrað pund af smérfitu í skilvindu-
rjóma gera meira smér en 100 pund af smérfitu í öðrum