Hlín. - 01.10.1902, Blaðsíða 58
58
önóg í því efni — þá samt, mun eg ieyfa mér að gera
mínar athugasemdir þar að lútandi, hve nær sem er og
eg fínn ástæðu til þess. En eg verð þó að taka það fram,
gagnvart þeim sem hafa skrifast á við mig um þetta
mál víðsvegar um land, og öðrum, að eg sé ekki á-
stæðu til fyrir mig að halda áfram slíkum hréfaskriftum
eins og nú stendur á, úr því Bfél. ísl. hefír sem sagt,
sýnt sig líklegt til að taka málið að sór, upp á lands-
ins kostnað. — Og met eg þó mikils þann áhuga fyrir
málinu, og þá alúð mér til handa, sem komið hefír fram
í bréfum manna til mín um það efni.
Enn fremur vil eg segja þetta:
Það væri einkargott ef það gæti hepnast vel, að
flytja ketið nýtt og að öllu leyti óvarið og ókælt, héðan
til útlanda, því það ætti þá að vera arðvænlegast. En
eg verð að játa, að eg er hræddur um að það geti
alls eklci gengið, svo að vel fari; þó hefí eg ekkert á
móti því, ef einhverjir vilja spandéra upp á þá hugmynd
500 kindakroppum með „Hólum“ nú í haust, samkvæmt
till. hr. G. G. búfr.kand.
En eg álít, að það hljóti að reynast óþarfa tilraun,
því að, þótt két þannig flutt til útl. kynni að seljast þar
með viðunanlegu verði, sem eg tel tvísýnt, þá er alveg
áreiðanlegt, að það mundi seljast ísvarið og alveg óskemt,
með talsvert hærra verði.
Hins vegar get ég ekki séð neitt þvi tií hindrunar,
að það heppnist í alla staði vel, að flytja kétið ísvarið,
eins og ég hefí áður tekið fram: ef hægt er að tryggja
það, að útskipun þess geti gengið greiðlega og fljótt, á
hverri einstakri höfn, og ef unt er, að fá hæfílega stór
og hraðskreið gufuskip, með frysti- eða kælivélum, til
þess flutnings, með sanngjörnum kjörum. Bún.fél. ísl.
ætti nú næst að semja um leigu eða kaup á 1—2 slik-