Hlín. - 01.10.1902, Síða 39
39
ist og er þá engin garðrækt ólíkt betri, því garðurinn
verður með þessu lagi einungis til skaða fyrir eigandann.
Enginn efl er á því, að úr öllum þeim göllum á görð-
unum, er eg nú nefndi, má ofur vel bæta, og það ættu
menn að kappkosta að gjöra, því garðyrkjan er in göfug-
asta og ánægjulegasta iðja, sem mannshöndin fæst við.
Víst dettur mér eigi í hug að neita því, að rnisæri
komi fyrir í garðyrkjunni, en svo er um flestar atvinnu-
greinar. Stundum er uppskerubrestur, en svo koma líka
stundum uppgripa-ár, er jafna hallann. Sömuleiðis er
víst, að eigi eru allar sveitir landsins jafn hentugar fyrir
garðyrkju ,en engu að síður getur hún þó í flestum ár-
um og flestum sveitum gefið sæmilegan arð. Það er
margreynt að af landi, sem er úr dagsláttu eða
300 □ faðmar, fást iðulega 30 tunnur af kartöflum eða
60 tunnur af gulrófum, ellegar só því skift í tvo helminga
þá 15 tu. af kartöflum og 30 tn. af rófum; verður þá
afraksturinn 260 kr. Tunnuna af kartöflunum met eg
8 kr., og af rófunum 4 kr., en alt káiið geri eg 20 kr.
virði og það má rófukálið kosta, hvort heldur það er
notað handa kúm eða til manneldis. Eg þykist viss
um að 30 tn. af rófum geri 10 tn. af soðnu og fergdu
káji, hverja á 2 kr. En nú er eftir að draga allan til-
kostnaðinn frá.
Fyrst er þá að reikna sjálfan till)úning sáðgarðsins,
só hann nýr. Hann er um 17 faðma á annan veginn
en 18 á hinn, það nemur sem næst 72 föðmum að utan-
málj, og verður girðingin þá 18 dagsverk (4 f. í dagsv.)
hvert á 2 kr. 50 a. = 45 kr. Umbylting landsins og
allur undirbúniugur verður 15 dagsverk (20 □ f. í dagsv.)
hvert á 2 kr. 50 a. = 37 kr. 50 a., til samans 82 kr. 50 a.
Vexti af þessu fé tel eg 3 kr. um árið, sem að
visu er of hátt nema fyrstu arin, en svo eykst aftur síð-