Hlín. - 01.10.1902, Page 86
86
'ásetti landstjóri sér að láta hermeun sína setjast um
borgina, með því að annars var eigi kostur.
Dómstóll var settur; var það hermannadómur' og í
honum 7 dómendur. Dagskamtarnir voru enn íærðir
niður.
Allir, som grunaðir voru um þjóf-nað, voru látnir
vera inni í húsum sínum frá sólárup-pkömu til sólarlags.
Varðmenn voru settir frammi fyrir forðabúrunum með
hlaðnar byssur og hörð hegning var lógð við þjófnaði
úr görðunum.
Þegar landstjórinn þannig hafði gert alt það, sem
frekast var unt, til þess að hamla því að óstjórn kæm-
ist á, reyndi hann með öilu móti að bæta úr hinum
óttaiegu framtíðárhorfum. Veiðimannaflokkur var stofn-
aður og voru í honum hinir beztu skbtmenn nýlend-
unnar. Þeir fóru um alla skóga í nágrenninu til þess
að skjóta villidýr. Fjöldi fiskimanna voru við fiskiveiði
í Port-Jackson. En ekld hafðist svo mikið upp úr þessu
sem kostnaði svaraði. Að mánuði liðnum höfðu veiði-
mennirnir að eins veitt 3 kongúrúhur og fiskimennirn-
ir- fengið um tvö þúsund pund af fiski. Þá ásetti land-
stjórinn sér að senda Supply, hið eina gagnlega skip,
sem nýlendan átti, til Batavíu á eyjunni Java, til þess
að sækja vistir; skipið gat verið komið aftur að háifu
ári liðnu, og á þeim tíma gátu menn lifað á vistunum,
sem eftir voru, þó með hinum mesta sparnaði.
(Framh.)