Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1963, Side 27

Kirkjuritið - 01.07.1963, Side 27
KIRKJUHITIÐ 313 Ef hringt er af rælni, hvað þá heldur óþokkaskap eða hlust- að með slæmri samvizku, fer eins og fyrir stráknum, sem lét telja sér trú um, að klukkan segði við hann: Þjófur er Iiann Dalamann, Dalamann, Dalamann. Með klukknahljómi liafa menn ýmist verið eggjaðir lil ófrið- ar, livattir til varna gegn voða, boðaðir til að fagna friði eða ganga til lielgra tíða. Von mín er sú, að klukkum íslenzkra kirkna verði ætíð hringt í anda kristinnar trúar til að vekja veikan vilja og efla samhug allra manna. Bið ég svo Hóla-dómkirkju vel að njóta þessarar afmælisgjafar frá íslenzku þjóðinni. Richard Beck: IMI Þú leifturstöfum letrar úfið haf, þitt logatraf er sæfarendum himingeisla hönd frá heimströnd. í gegnum myrkrið skærast Ijós þitt skín, er skelfir sýn hinn æsti sær með brimfext boðaföll og bylgjuf jöll. Þú lýsir viltmn leið um þokuheim á lagargeim, í birtu þinni brosir yfir dröfn hin blíða höfn.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.