Kirkjuritið - 01.07.1963, Page 27
KIRKJUHITIÐ
313
Ef hringt er af rælni, hvað þá heldur óþokkaskap eða hlust-
að með slæmri samvizku, fer eins og fyrir stráknum, sem lét
telja sér trú um, að klukkan segði við hann:
Þjófur er Iiann Dalamann,
Dalamann, Dalamann.
Með klukknahljómi liafa menn ýmist verið eggjaðir lil ófrið-
ar, livattir til varna gegn voða, boðaðir til að fagna friði eða
ganga til lielgra tíða.
Von mín er sú, að klukkum íslenzkra kirkna verði ætíð
hringt í anda kristinnar trúar til að vekja veikan vilja og efla
samhug allra manna. Bið ég svo Hóla-dómkirkju vel að njóta
þessarar afmælisgjafar frá íslenzku þjóðinni.
Richard Beck:
IMI
Þú leifturstöfum letrar úfið haf,
þitt logatraf
er sæfarendum himingeisla hönd
frá heimströnd.
í gegnum myrkrið skærast Ijós þitt skín,
er skelfir sýn
hinn æsti sær með brimfext boðaföll
og bylgjuf jöll.
Þú lýsir viltmn leið um þokuheim
á lagargeim,
í birtu þinni brosir yfir dröfn
hin blíða höfn.