Kirkjuritið - 01.07.1963, Síða 92
378
KIRKJURITIÐ
Altarissteinn fannst í kirkjurústum á Skarði í Með’allandi laugardaginn
17. ágúst. Á Skarði stóð kirkja frá öndverðu og frani undir miðja 17 öld.
Altarissteinn þessi er skreyttur fimm smákrossum og óskaddaður að öðru
leyti en því að lirotið er af einu horni lians. Verður hann geymdur a
allari Langholtskirkju.
Minnzt var aldarafmœlis Rauiia Krossins í Þjóðleikhúsinu 1. septemher
1963, kl. 8,30. Varaformaður R. K. L, Jón Auðuns dómprófastur, setti
samkomuna og sleit henni. Heilbrigðismálaráðherra, Bjarni Benediktsson,
flutti ávarp. Guðmundur Jónsson óperusöngvari söng einsöng. Undirleik-
ari var Þorkell Sigurlijörnsson. Landlæknir, Sigurður Sigurðsson, flutti
ávarp. Einar Sveinhjörnsson lék einleik á fiðlu. Borgarstjóri, Geir Hall-
grímsson, flutti ávarp. Rögnvaldur Sigurjónsson lék einleik á flygil. Valur
Gíslason leikari flulti þælti úr aldarsögu Rauða Krossins. — Samkoma
þessi var hin ánægjulegasta í alla staði.
Sœnskur byggingarfrœSingur var hér á fcrð í septemhcr og flutti erindi
um lýsingu kirkna. Sýndi inargar myndir máli sínu til skýringar. Kom hann
á vegum Ljóstæknifélags íslands, sem lætur sig mál þetta miklu varða.
Formaður þess er Aðalsteinn Guðjónsson, raffræðingur. Er þess hrýn þörl
að máluin þessum verði gefinn meiri gaumur í framtíðinni, sakir auk-
innar tækni og þess, að nú er víðast kostur að Iýsa kirkjur með rafmagni.
ER LENDAR FRÉTTlR
Framlag til kristniboðs á NorSurlöndum hefur aukizt mjög síðustu árin.
Sérstaklega má nefna í því sambandi fjársöfnun dönsku kirkjunnar á upp-
stigningardag.
I haust nemur blökkumaSur í fyrsta sinni guðfræðinám í Aho. Kosta
Finnar nómsdvöl lians.
Merkilegur þjóSminjafundur. — Fyrir nokkru liefur horgin Asdód verið
grafin upp. Var hún ein af fimm höfuðborgum Filista á límiim Gamla-
testamentisins og stendur milli strandlengju Gaza og Tel-Avív.
Gröfturinn bendir til Jiess, að Asdód liafi verið slærsta horgin í Land-
inu helga, alll frá tímum járnaldar og til 6. aldar f. Kr. Um útlit hennar
verður nokkru ráðið frá eiröld lil járnaldar. Kanaanitar liafa higt borgina
í eyði á 13. öld f. Kr. Síðan hefur hún legið í rústum — aðeins verið þar
smáþorp.
Fjögurra feta þykkur tígulsteinsmúr hefur verið umhverfis horgina. Frá
varðturnum lians hefur mátt fylgjast með þeim, er færu strandleiðina með-
fram Miðjarðarliafinu. En sú leið var fjölfarin milli Egyplalands, Sýrlands
og allt til Mesopótamíu (Iraks).