Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1971, Side 20

Kirkjuritið - 01.12.1971, Side 20
Ég sótti samkomur hans, og varð þegar á fyrstu samkomunni mjög snortin af boðskap hans. Samt fannst mér, að ég gœti alls ekki gefist Guði, ég vœri svo slœm á allan hátt. Þó kom að því, að Guðs orð varð mér yfirsterkara og ég játaði trú mína á Jesúm sem frelsara minn og Drottin. Og þá kom kristniboðsköllunin eigin- lega um leið, sem löngun fyrst, eða aðeins hugsun, en ég ýtti henni frá mér. Mér fannst það slík fjarstœða, að Guð vildi kalla mig til kristniboðs. En þessi hugsun kom aftur og aftur, svo að ég varð að biðja Guð um að sýna mér það, ef þetta vœri frá honum. Ef ekki, þá yrði hann að taka það frá mér. Þá bœn bað ég eiginlega alla tíð, þangað til ég fór til Kína. — Þessi predikari ferðaðist á veg- um Kínatrúboðsins, segir Ólafur. — Hvað hét hann? — Hann hét Peter Gjœvran, og var ekki mikið þekktur maður. — Slotsvik-hjónin voru kristniboðs- vinir i sambandi við þetta sama félag, Kínatrúboðið, segir Ólafur. — Þar koma þrœðirnir saman. Þess vegna lentum við siðast á sama stað. — Þetta vor, 1914, voru miklar rceningjaóeirðir í Kina, segir Her- borg, — einmitt á þeim slóðum, þar sem norska kristniboðssambandið starfaði, svo að Kína var mjög um- talað og mikið skrifað um kristni- boðið þar í blöðum. Ólafur minnist þess, að þá var lœknir norska Kínatrúboðsins drep- inn, er hann var að stumra yfir sœrð- um rœningja. Ég spyr Herborgu, hvort mikill kristniboðsáhugi hafi verið á 18 heimili hennar. Hún segir, að sV° hafi ekki verið umfram það, se,TI gerðist. Faðir hennar var fremur kirkjunnar maður, hafði verið á lý® skóla, en ekki komizt 1 snertingu vl neinar beinar vakningar. — Hann var einn af þeim, sern enginn vissi til, að hefði nokkum tlma horfið burtu frá Guði. — Nei, hann var trúaður maðuu bœtir Ólafur við og segir síðan áherzlu: — Og mikill heiðursmaður- Svo vandaður á allan hátt. — En mamma hafði komizt til I' andi trúar fyrir vakningu, sem vCir þarna í sveitinni. — Að þeim orðum sögðum snýr Herborg aftur frásögn inni að köllun sinni. , — Ég sagði engum frá þvl a ég vœri að hugsa um kristnib0 Mér fannst það svo mikil fjarstcfið0- að Guð skyldi kalla mig til Þe5S' En til þess að vera við öllu búim ef þetta vœri vilji hans, fór e9 , kennaraskóla. Á meðan ég var þeim skóla, sótti ég síðan um 0 gerast kristniboði hjá KínatrúboðinU' og fékk jákvœtt svar. Þeir tóku borgina að lokum Þau hjónin komu ekki jafn snemma til Kína. Eins og áður segir fór Ó\°^° fyrst til Ameríku með skólabrceðrunl sínum. Þar lögðu þeir stund á 51 hvað, sem lœkningum við kemur greining sjúkdóma, að verjast snn gera að sárum, taka út tennur o.s-'frV — Já, segir Ólafur og kemur upP í honum glettnin. — Það kom sér nU vel, að ég hafði lœrt að taka tennUr A

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.