Kirkjuritið - 01.06.1972, Side 50

Kirkjuritið - 01.06.1972, Side 50
látan alvörublœ, sem yfir honum hvíldi við fyrstu kynningu, var hann liúfmannlegur í viðmóti og glaður á góðri stund. Embœttisstörf sín öll rœkti hann af sérstakri reglusemi og skyldurœkni. Hann þótti mjög góður rœðumaður og öll tíðagjörð hans fór fram með sérstökum virðuleik og smekkvísi. Barnauppfrœðslu og húsvitjanir rœkti hann af sérstakri alúð og kostgœfni, enda naut hann þakklœtis og virð- ingar hjá sóknarbörnum sínum fyrir œskulýðsstarf sitt og sálgœzlu. Þó mun séra Böðvar hafa verið nafn- kunnastur fyrir skólahald sitt og ungl- ingafrœðslu. Um fjöldamörg ár hélt hann unglingaskóla á Hrafnseyri, þar sem hann kenndi allar náms- greinar, sem krafist var undir gagn- frœðapróf. Héldu margir af nemendum hans áfram námi, sumir I menntaskóla, aðrir í kennara- eða stýrimannaskóla. Enginn vafi leikur á því, að þessi ungmennafrœðsla séra Böðvars var gagnmerk og því ncer sérstœð hér á landi á þessum árum. Hann var sjálf- ur fjölmenntaður lœrdómsmaður, sem auk þess bjó yfir sérstökum kennara- hœfileikum og lifandi áhuga á því, að skólavistin yrði nemendum hans að sem mestu gagni. Hann lagði r!ka áherzlu á það, að ungmennin temdu sér háttvísi og prúðmannlega framkomu og alhliða reglusemi. Þá krafðist hann algjörs bindindis, bœði hvað snerti áfengis- og tóbaks- neyzlu, enda var hann sjálfur einlœg- ur og áhugasamur „templari" alla œvi. Eins og að líkum lœtur komst séra Böðvar ekki hjá því að taka að sér ýms opinber trúnaðarstörf í héraði sínu. Auk prófastsstarfa, er hann hafði með höndum hin síðari prests- skaparár sín, var hann meðal annars kjörinn sýslunefndarmaður og fuIItrui á þing- og héraðsmálafundi sýslunn- ar. Þá varð hann enn fremur að gegna oddvitastörfum, svo fátt eitt sé nefnt. Þá sat hann í stjórn Presta- félags Vestfjarða og átti mikinn og merkan þátt í útgáfu og ritstjorn LINDARINNAR, tímarits félagsins- Séra Böðvar ritaði einnig fjöld° greina í blöð og tímarit. Fjölluðu um hin margvlslegustu efni, skólamál/ bindindi og kristindómsfrœðslu. Einn- ig samdi hann og gaf út námsbók 1 kristnum frœðum, til fermingarundit- búnings. — Þá ritaði hann sögu Hrafnseyrar, hina fróðlegustu bók/ sem lýsir staðnum og skýrir fra sögulegum atburðum, er þar hafn gerzt, bœði fyrr og síðar. Máske ber þar þó hœst minningu Jóns Sigur^s' sonar, forseta, sem fœddist þar °9 ólst upp. í bók þessari kemur'í Ij°s kœrleikur séra Böðvars til Hrafnseyt' ar, svo ósjálfrátt kemur manni í huð' að hann hafi eins og Grelöð land- námskona, fundið hér þann ,,hun' angsilm úr grasi", sem batt hann við þennan sögufrœga stað alla hans embœttistíð. Þá er skylt að geta þess, að séra Böðvar var prýðilega skáld' mœltur. Eftir andlát hans gaf ekk|a hans, frú Margrét Jónsdóttir, út Ijóð- mœli hans. Höfðu áður birzt sálmal og kvœði eftir hann, bœði í LlNDlNNI og víðar. Séra Böðvar var tvíkvœntur. Fyrrl kona hans var Ragnhildur Teitsdóttir frá ísafirði. Varð þeim fjögurra barna 144

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.