Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 10
ekki einu sinni fyrir feröalög vegna
þess erindis og fjarveru aö heiman.
Hygg ég þaö líka vera nokkuö sér-
stakt, ef ekki algjört einsdæmi, að
prestastétt landsins tók svo fagnandi
erindi þeirra, sem um félagsstofnun
höfðu forgöngu, að það hafnaði að-
eins einn þáttöku. Bendir þetta bæði
til óvenju mikillar stéttvísi sem skiln-
ings á því, að full þörf varfyrirþennan
málsvara stéttarinnar.
Af framansögðu mætti ætla, að það
hafi eitt vakað fyrir prestum, að nú
sæju þeir fram á betri hag og betri
afkomu. En langterfráþví,að þaðeitt
hafi leitt til félagsstofnunar, enda þótt
nauðsynjamál væri. Strax í upphafi
var annað mál, sem ekki hefur síður
fylgt þessu félagi en hið fyrrnefnda,
en það var útgáfa blaðs. Prestar
gerðu sér grein fyrir því, að svo nauð-
synleg sem kirkjuganga með predik-
uninni væri, þá var hitt líka þarft að
koma færandi hendi inn á heimili
fólks með blað, þar sem fjallað væri
um málefni kirkju og kristindóms og
umhugsunarverð efni önnur frá þeim
sjónarhóli, er trúin leiðir lesanda til.
Það var því algjör einhugur meðal
prestanna um það, að blað skyldi út-
gefið. Hitt greindi þá aftur á móti
nokkuð um, hvers konar blað það
ætti að vera. Töldu sumir, að nú
skyldi mest hugað að sérþörfum
stéttarinnar og gefið út sérstakt blað
fyrir þá, t. d. einu sinni á ári, þar sem
leitazt væri við, að mæta þörfum
þeirra sem ritskýrenda og fræði-
manna, með greinum á því sviði og
bendingum um bækur, sem að haldi
mætti koma, eða þá jafnvel með því
að kaupa nokkrar bækur, sem síðan
gengju milli presta og einn skilaði til
annars, að lestri loknum.
En þeir voru miklu fleiri og þeirra
sjónarmið varð ofan á og hefur ríkt
síðan, að blaðið skyldi ætlað öllum
almenningi og koma oft út, helzt
mánaðarlega og reglulega, svo að
hægt væri að treysta því. Var strax
hafizt handa um útgáfumálin, og sá
Prestafélagsblaðið dagsins Ijós strax
á fyrsta árinu og kom síðan út nokkuð
reglulega í samfellt 16 ár, en síðan
hefur rit Prestafélagsins borið nafnið
Kirkjuritið og verið gefið út óslitið
síðan.
Þá má ekki síður geta þess í tilefm
afmælis Prestafélags íslands, að út-
gáfustarfið hefur ekki takmarkazt við
það eitt, sem í riti þess hefur mátt
lesa. Hvað eftir annað er drepið á þa^
í fundargjörðum, að einn eftir annan
bendir á verðug verkefni til þess að
auðga bókakost þann, sem fólk getut
haft aðgang að og á einn eða annan
veg lyft huga þess og eflt anda þesS’
Var snemma farið að huga að útgáfu
hugvekna, enda ríkulegur arfur í hus'
lestrarbókum þeim, sem íslenzka
þjóðin hefur varðveitt, nýtt og upp'
byggzt af um aldir. Og hafa tv®r
slíkar bækur með hugvekjum
ræðum eftir presta landsins ven
gefnar út á vegum Prestafélags |s
lands og selzt vel.
Er því ekki að neita, að enn he’u ■
því máli verið hreyft, hvort ekki vse
tímabært að bæta þeirri þriðju við- ,
ekki gott að gera sér grein fyrir
hvað veldur hiki um útgáfu slikr.,|
bókar. Kann þar að koma til mi '
kostnaður við bókaútgáfu núna, e ^
þá einnig hitt, að ekki sé búizt við, a
88