Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 56
Dr. BJÖRN BJÖRNSSON, prófessor:
Hlutverk kirkjunnar
í íslenzku nútímaþjóðfélagi
Erindi flutt á ráðstefnunni um kristni og þjóðlíf 1976.
Hvert er hlutverk kirkjunnar í íslenzku
þjóðlífi? Þeirri spurningu verður
leitazt við að svara í eftirfarandi er-
indi. Þó skal þegar tekinn vari á því,
að áherzlan verður ekki lögð á þá hlið
spurningarinnar, sem lýtur að því að
lýsa því hlutverki, sem kirkjan nú
gegnir. Um þá hlið málsins verður
fjallað sérstaklega í þessum flokki er-
inda um kristni og þjóðlíf, þegar gerð
verður grein fyrir stöðu kirkjunnar.
Hér og nú verður hins vegar tekin til
skoðunar sú spurning, hvert ætti að
voru mati að vera hlutverk kirkjunnar
í íslenzku þjóðlífi. í raun er hér um að
ræða tvær hliðar á einu og sama mál-
inu, en mikilvægt er engu að síður að
halda þeim skýrt aðgreindum. Þann-
ig er eðlilegt, að beitt sé aðferðum
félagsfræðinnar til öflunar upplýs-
inga um ríkjandi stöðu kirkjunnar í
íslenzku þjóðfélagi, en hinni spurn-
ingunni, um hið eiginlega hlutverk
kirkjunnar, verður ekki svarað án
þess að skírskota til guðfræðilegra
viðhorfa. Slík viðhorf hljóta að ráða
mestu um þau tök, sem efnið verður
tekið í eftirfarandi máli.
Áður en lengra er haldið teljum vér
þó rétt að víkja örfáum orðum að þvj.
sem nefna mætti tilefni hinnar tví-
þættu spurningar um stöðu og hlut-
verk kirkjunnar.
í fljótu bragði mætti ætla, að þetta
tilefni væri næsta lítið. Kirkjan gegnir
að mestu átakalítið nú sem endranaer
sínu hefðbundna hlutverki. Guðs-
þjónustur eru haldnar, börn eru skírð
og fermd, hjónavígslur eru fram-
kvæmdar, sungið eryfir látnum. En er
þetta svo lítið tilefni, þegar grannt er
skoðað: Hvað felst til dæmis í því- að
kirkjan gegni hlutverki sínu á hefð-
bundinn hátt á sama tíma og ný'r
þjóðfélagshættir hafa rutt úr veg|
fornum hefðum og myndað nýjar '
134