Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 74
til helgunar eftir venjulegum hætti, en
eg hefi ekki ennþá ákveðið með sjálf-
um mér, hvort vatni skuli blandað í vín-
ið eða ekki, en hneigist þó að því, að
menn hafi vínið eitt, án þess að vatni
sé blandað í, því að mér geðjast illa
að þeirri merkingu, sem er í Jesaja 1.
,,Vín þitt (segir hann) er vatni bland-
að.“-i4 Vínið eitt táknar fagurlega
hreinleika kenningar fagnaðarerindis-
ins. Því næst er að nefna það, að ekki
er úthellt fyrir oss öðru en blóði Krists
einu, óblandað voru blóði, og minn-
ingu hans gerum vér hér, svo að ekki
fær draumur þeirra rætzt, sem segja,
að hér sé sett fram líking um einingu
vora með Kristi. Vér gerum hér ekki
minningu þessarar einingar né erum
vér samneinaðir honum áður en hann
úthellti blóði sínu. Annars væri þess
minnst í tilbeiðslunni, að blóði voru
hefði einnig verið úthellt fyrir oss á-
samt blóði Krists. En eg vil ekki setja
hjátrúarfullt lögmál gegn frelsinu.
Kristur mun ekki gera mikið úr þessu,
né er þetta þess vert að þræta um það.
Nægilega hafa hin rómverska kirkja
og hin gríska barizt um þetta heimsku-
legri baráttu eins og um margt annað.
Nokkrir draga það að sönnu fram, að
úr síðu Krists hafi runnið vatn ásamt
blóði. Það skiptir engu máli. Vatn
þetta merkir annað en það, sem þeir
vilja láta það tákna með þessari þlönd-
un með vatni. En þetta vatn hefir ekki
verið blandað með blóði, auk þess
sem þessi líking sannar ekkert, þá
stenzt þetta dæmi ekki heldur. Því
skal fara frjálslega með þetta eins og
mannlega uppfinningu.
II. Eftir að brauð og vín hefir verið bor-
ið fram, þá skal strax haldið áfram með
þessum hætti: „Drottinn sé með yður.‘
Svar: „Og með þínum anda.“ „Lyftun1
hjörtum.“ Svar: „Vér hefjum þau til
Drottins." „Látum oss þakka Drottni
Guði vorum.“ Svar: ,,Það er maklegt
og réttvíst, sanngjarnt og hjálpsam-
legt, að vér þökkum þér ávallt og alls
staðar, heilagi Drottinn, almáttugi fað-
ir og eilífi Guð fyrir Krist Drottin vorn.“
III. Síðan: „Hann tók brauðið daginn
áður en hann var píndur, gjörði þakkir,
braut það og gaf lærisveinum sínum
og sagði: Takið og etið, þetta er lík'
ami minn, sem fyrir yður er gefinn-
Sömuleiðis tók hann og kaleikinn eftif
að hann hafði neytt kvöldmáltíðarinn-
ar og sagði: Þessi kaleikur er hið nýja
testamenti í blóði mínu, sem fyrir yð'
ur og fyrir marga verður úthellt til fyr'
irgefningar syndanna. í hvert sinn er
þér gjörið þetta þá gjörið það í mína
minningu.“ Þessi orð vildi eg að sung-
in yrðu eftir svolitla þögn eftir forgild'
ið4r' með sama tón og drottinleg bsen
er sungin á öðrum stað í lágasöng, syo
að þeir, sem viðstaddir eru geti hlý^
á. Þó sé þetta allt frjálst guðhræddum
sálum, hvort heldur að fara með þessi
orð í hljóði eða upphátt.
IV. Að lokinni helgun syngi kórinn
SanctusM og á meðan sunginn er
« Jes. 1:22.
45 post prefationem.
152
1G Heilagur, heilagur, heilagur ert þú Drottinn
Guð allsherjar o. s. frv.