Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 30
Vígslubiskup, sr Pétur, framkvæmdi
vígsluna.
Á 1. sd í aðventu, 27. nóv., var vígð-
ur salur í Hrafnistu í Hafnarfirði, en
þar hefur hin nýja Víðistaðasókn
fengið aðstöðu til guðsþjónustu-
halds, sakir góðvildar forstöðu-
manna þessa vistheimilis, sem að
sjálfsögðu hefur og eignast þarna
helgidóm til eigin nota. Þessi aðstaða
bætir úr bráðabirgðaþörf hins unga
safnaðar.
Á pálmasunnudag, 19. marz, var
vígður salur á grunnhæð þeirrar
kirkju sem Árbæjarsókn í Reykjavík
er að reisa. Þetta var gleðilegur á-
fangi í sögu safnaðarins, sem eins og
aðrir nýir og fjölmennir söfnuðir höf-
uðborgarinnar hefur lengi orðið að
bíða og berjast til þess að fá lág-
marksaðstöðu til starfsemi sinnar.
Námskeið og ráðstefnur
Prestafélag Hólastiftis forna gekkst
fyrir starfsmannanámskeiði á Hólum
8.-10. júlí. Það var fyrsta námskeið
sinnar tegundar hér á landi og þakk-
arvert framtak. Svo vel tókst til um
þessa tilraun, að það örvar til frekari
aðgerða af sama tagi. Með þessu
frumkvæði jók Prestafélag Hólastiftis
enn hróður sinn. Það félag er áttrætt
á þessu ári, elzt meðal samtaka sinn-
ar tegundar. Prestastefnan þakkar
heillarík störf félagsins. Megi það
jafnan verða bræðrum styrkur og
kirkjunni gæfa.
Organistanámskeið var í Skálholti
fyrstu vikuna í september, hið þriðja í
röð slíkra námskeiða, sem söngmála-
stjóri hefur gengizt fyrir og stjórnað
með miklum ágætum. Hafa þátttak-
endur sótt sér góða örvun og mennt-
unarauka í þessi námskeið.
Um miðjan október gengust kristi-
leg félög í Reykjavík fyrir ráðstefnu,
sem hafði yfirskriftina: Grundvöllur-
inn er Kristur. Var hún fjölsótt og um-
ræður miklar.
Norrænir kristnir menningardagar
voru á Akureyri og í Reykjavík 31. júlí
til 5. ágúst. Var þetta fyrirtæki skipu-
lagt í sambandi við stjórnarfund Nor-
rænu ekumenisku stofnunarinnar,
sem að þessu sinni var haldinn hér á
landi (á Stóru-Tjörnum í Ljósavatns-
skarði, á Akureyri og í Reykjavík)
Hugmyndin var að kynna nokkuð
kristna þætti í norrænu menningarlífj
samtímans. Merk erindi voru flutt í
Akureyrarkirkju og í Norræna húsinu
í Reykjavík, íslenzk og erlend, og listir
kynntar. Ég færi þeim þakkir, sem af
íslenzkri hálfu lögðu verðmætan
skerf til þessarar tilraunar, svo og
þeim, sem á annan hátt studdu að því.
að hún mátti svo takast sem raun varð
á.
Alþjóðleg nefnd, sem sér um ung-
mennaskipti milli landa á vegum
kirkna, hélt fund í Skálholti í sep-
tember og sat þar á rökstólum '
nokkra daga. Þar voru saman komnif
fulltrúar frá 18 löndum og ýmsum
kirkjudeildum. Á dagskrá var grund-
völlur og markmið þessararstarfsemi
og gekk fundurinn frá samþykkt, sem
markar henni traustari grunn og
stefnu. íslenzka kirkjan hefur verið
tiltölulega virkur þátttakandi í þessu
starfi síðan það hófst fyrir 18 árum-
Fyrir hönd æskulýðsstarfs kirkjunnar
hafa hjónin Hanna og sr. Jón Bjaf'
108