Kirkjuritið - 01.06.1978, Page 14
kjörinn heiðursfélagi Prestafélagsins
20. júní 1959, á fimm ára afmæli bisk-
upsvígslu hans.
Á hinum síðasta aldarfjórðungi í
sögu Prestafélags isianus hefur að-
eins einn formaður jafnframt gegnt
störfum ritstjóra Kirkjuritsins, og er
það séra Gunnar Árnason, sem vakti
mikla athygli með greinum sínum
mörgum, þar sem saman fór vakandi
áhugi og góð þekking samfara næm-
leika á það, hvernig hægt væri að
koma boðskapnum á framfæri, svo
að eftirtekt vekti.
Enn eitt nafn gnæfir þar upp úr,
þegar minnst er á síðasta aldarfjórð-
ung Prestafélags íslands. Það er
nafnið séra Jakob Jónsson. Séra
Jakob tók við stjórn félagsins úr
höndum herra Ásmundar við bisk-
upskjör þess síðarnefnda árið 1954.
Það féll því í hans hlutað mótafélagið
eftir þeim kröfum, sem samtíminn
hefur sett fram um stéttarfélög og
fagfélög. Var séra Jakob slíkur bar-
áttumaður fyrir hag presta, að leitun
mun að öðrum eins. Hann átti fleiri
ferðir á fund yfirvalda á þeim tíma,
heldur en tölu verður við komið og
sískörp hugsun hanssáætíð nýjarog
nýjar leiðir til að vinna brennandi
hagsmunamálum stéttarinnar fylgi. í
tíu ár hélt dr. Jakob um stjórnar-
tauma, og var þá orðinn lúinn nokk-
uð, enda mun það einkenna stétt
hans ekki síður en margar aðrar og
kannski jafnvel frekar, að ekki er
hjarðvitjun sveitar hins ,,góða hirðis“
svo næm, að prestum verði auðveld-
lega safnað í sveit, sem unnt er að
reka eða leiða af einum forystu-
manni, jafnvel þótt góður sé, svo að
allir fylgi þar fúslega. Og er það einn-
ig oft með mál sterkra leiðtoga, að full
meðvitund um framlag þeirra fæst
ekki, fyrr en við síðari yfirvegun í ró
og betri yfirsýn fjarri átökum stundar-
innar.
Og árið 1956 var stór kapítuli
skráður í sögu Prestafélags íslands,
þegar það stóð fyrir hinu fyrsta nor-
ræna prestamóti, sem haldið hefur
verið hér á landi. Komu norrænir
bræður bæði siglandi og fljúgandi og
áttu hér þá daga, sem enn eru rifjaðir
upp, þegar þátttakendur hittast eða
erlendir bræður sjá einhvern héðan
að heiman, jafnvel þótt sá hafi Þar
hvergi komið nærri. Er það ekki fyrr
en nú á næsta sumri, sem áformað er
að feta í fótspor þeirra, sem hófu
merkið ótrauðir á loft um fulla þátt-
töku íslenzkra presta í sveit nor-
rænna bræðra, en að ári verður her
haldið annað slíkt mót.
Prestafélagið hefur verið virkt 1
norrænu samstarfi, enda þótt vega'
lengdir hindri eins virka þátttöku og
hugur hefur stefnt til. En félagið er
virt af öðrum prestafélögum Norður-
landa og er harmað, þegar ekki e
unntaðtakafullan þáttístarfi.
Þá var ákveðið strax 15. apríl 19
að tilnefna fimm menn til að taka sæ
í miðstjórn Allherjarsambands
lenzkra ríkisstarfsmanna, síðan
leiðin í BSRB og nú er Prestafé|a9
íslands í Bandalagi háskólamanna- ,
Sextíu ár eru að baki, og nú hefu
máli mínu verið drepið á nok
þætti, endaþótt miklu fleira sé Þae,,t_
ekki hefurhérverið nefnt. Átímarn°^
um er þeirra gjarnan minnzt, se
þakkarskuld eiga stærsta, og er vl
92