Kirkjuritið - 01.06.1978, Side 36

Kirkjuritið - 01.06.1978, Side 36
Sr. Sigfinnur Þorleifsson samhengi prédikunar og safnaðar skorti algerlega á mínum námsárum í guðfræðideild H. í., og þegar maður lítur á þessar ræðuritgerðir sínar, þá hefur maður í höndunum skólabók- ardæmi um það, hvernig ekki á að prédika. Ekki þar fyrir, að prédikun okkar er alltaf ófullkomin og mesta furða, hvað safnaðarfólk hefur mikið umburðarlyndi gagnvart óreyndum, nývígðum presti. En að flytja þessar skólaprédikanir yfir þeim söfnuði, sem maður hefur verið settur til að þjóna, væri eins og að lesa upp úr forystugreinum dagblaðanna yfir fólki úr öðru sólkerfi. Fátt hefði verið manni betra vegarnesti út í starfið, en prédikunarskylda á námsárunum, helzt úti í sínum eigin söfnuði og yröi það áreiðanlega ávinningur bæði fyr' ir guðfræðideildina og kirkjuna í heild. Þetta starf þyrfti að launa og árangurinn mundi ekki láta á sér standa í meira lifandi starfi kirkjunn- ar. Það er stundum sagt, að menn hefj' guðfræðinám trúaðir og Ijúki því trú' lausir. Þettaerekki mín reynsla. Náið samfélag stúdenta og kennara, bænagjörðir og guðfræðilegar um- ræður hjálpuðu a. m. k. mér til a° finna nokkra fótfestu í trúnni. En margt má betur fara, og ég held að t- d. prédikunarskylda úti í söfnuðun- um og í nánum tengslum við tilbeiðslu stuðli betur en flest annað að trúföstum þjónum innan íslenzku kirkjunnar. Ég hef gert mér dálítið tíðraett um prédikunina í þessu ágripskennda er- indi mínu um guðfræðimenntun og prestsþjónustu, og er það kannske 114

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.