Kirkjuritið - 01.06.1978, Side 58

Kirkjuritið - 01.06.1978, Side 58
beitt til þess að sljóvga tilfinningar manna fyrir félagslegu misrétti og til að sætta menn, einkum hina undir- okuðu í samfélaginu, við ríkjandi ástand. Trúin er uppnefnd „ópíum fyrir fólkið“, deyfilyf, sem forrétt- indastéttir taka í þjónustu sína til þess að halda múgnum í skefjum. Til viðbótar þessum sökum, sem eru ærnar í sjálfu sér, eru fleiri bornar fram, t. d. að trúin sé dragbítur á félagslegar framfarir og framvindu vísindalegrar hugsunar. Öllum þessum ávirðingum má finna stað á einum eða öðrum tíma í sögu kirkjunnar. Það er velunnurum kirkjunnar jafn skylt að viðurkenna og það er þeim sárt. En á hinn bóginn er það staðreynd, sem þeir mega reyna, er um það vilja vita, að sá vitn- isburður trúar og um trúna, sem Biblían boðar, er í hrópandi mótsögn við ásakanir af þessu tagi. Sam- kvæmt þessum vitnisburði er það sjálf andhverfa trúarinnar, vantrúin, er ætíð tekur á sig mynd stöðnunar og afturhalds. Orð trúarinnar er frá upphafi til enda hið skapandi, sístarf- andi orð Guðs. ,,Því að eins og regn og snjór fellur af himni ofan og hverf- ur eigi þangað aftur fyrr en það hefur vökvað jörðina, gjört hana frjósama og gróandi, og gefið sáðmanninum sæði og brauð þeim ereta, eins erþví fariö meö Guðs orö, það er útgengur af mínum munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyrr en það hefur framkvæmt það, sem mér vel líkar, og komið því til vegar, er ég fól því að framkvæma". (Jes. 55:10 nn). Þannig mælir spámaðurinn Jesaja. Orð Guðs, sem jafnframt er orðið um Guð, lykillinn að veru hans, er hið skapandi orð. Allir aðrir veru- hættir hans ákvarðast af þessari frumveru hans sem skapara. Heilag- leiki Guðs birtist spámanninum í lík- ingu glóandi steins, ersnertiróhrein- ar varir hans og hreinsar hann af alln synd. Réttlæti Guðs er aldrei kunn- gjört sem einber hugmynd, heldur sem virkt afl, sem skapar þeim rétt, sem engan á fyrir. Miskunn Guðs að sama skapi þekkir sá einn, sem Guð auðsýnir miskunn. Um kærleika Guðs er vitnað, vegna þess að Guð hefur elskað oss að fyrra bragði. Vert er að gefa þessum eiginleika Guðs sem sköpunar nánari gaum, þar eð hann er ekki einasta ákvarð- andi fyrir veru Guðs, heldur einnig fyrir eðli þeirrar trúar, sem maðurinn er kallaðurtil. Trúarsamfélag manns- ins við Guð er í sköpunarsögunni túlkað með þeim orðum, að maður- inn sé skapaður í Guðs mynd. Þetta tákn, Guðsmyndin, vitnar um þann hinzta tilgang mannlegrar tilveru, að manninum er ætlað að vera þátttak- andi í hinni sístæðu sköpun Guðs- Sem slíkur er hann ráðsmaður Guðs hér á jörð. Honum er gefið umboð til þess að gera sér jörðina undirgefn3- allt lífríki náttúrunnar er lagt honum að fótum. En þessu einstæða umboði fylgir ábyrgð, sú ábyrgð að hlíta í hvi- vetna þeim lögmálum, sem Guö' skaparinn, hefur sett sköpuninm- Með öðrum orðum, valdi mannsins yfir eigin lífi og öllu öðru lífi eru set þau mörk, að hann beiti því til v'ð- halds og eflingar lífríki Guðs. Gset' hann þessa lifir hann í trúarsamfélað við Guð, gjafara lífsins, sýnir tru 136

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.