Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 67
kirkjunni. Hennar eöli er að vekja
^enn til starfs, ekki að svipta þá á-
byrgð, heldurað brýnaþátil ábyrgðar
3 eigin lífi og annarra. Takist kirkj-
unni þetta eitt þá vinnst ekki einvörð-
ungu það virka samfélag, sem kirkj-
unni ber að vera, heldur einnig það
mótvægi gegn ábyrgðarleysi ein-
sfaklingsins, sem velferðarsamfélag-
'ð má sízt án vera. Starfshættir kirkj-
unnar þurfa að breytast á ýmsa lund
°9 að því er unnið. En höfuðáherzl-
Una, teljum vér, ber að leggja á að-
ferðir, sem eru til þess fallnarað vekja
áhuga hins kristna safnaðar til virkra
starfa. Innan vébanda safnaðarins er
að finna alla þá þekkingu á þjóðfélag-
inu, sem kirkjan þarf á að halda til
þess að hin þjóðfélagslega gagnrýni
hennar verði málefnaleg. Hlutverk
kirkjunnar er að virkja þessa þekk-
ingu til þjónustu við það málefni sem
hún veit æðst, fagnaðarerindið um
Jesúm Krist, erindið, sem skapar
mennskuna og hið réttláta þjóðfélag.
Andstaða gegn kristnum fræðum í Kennaraháskólanum
Tvennt gerðist í vor, sem umhugsunar er vert og fyrirbænar. Meira en
60 nemendur gengu til lokaprófs í kristnum fræðum í Kennaraháskóla
Islands á liðnu vori. Rúmlega 50 skiluðu auðu og lýstu þannig and-
stöðu sinni við stöðu greinarinnar í KHÍ, fáeinir skiluðu úrlausnum, en
tóku undir andmæli félaga sinna. Aöeins fjórir skiiuöu prófinu at-
hugasemdalaust. Hluti þessahópsgengurtil starfa ískólum landsinsá
þessu hausti. - í vor var einnig auglýst á vegum KHÍ námskeið fyrir
kristnifræðikennara, er halda skyldi í ágústmánuði. Á námskeiðinu átti
að fjalla um hina nýju námskrá og kynna nýtt námsefni fyrir 2. og 8.
bekk m. a. Aflýsa varð námskeiðinu vegna ónógrar þátttöku. vera má
að auglýsingum um námskeiðið hafi ekki veriðfylgteftirsem skyldi.en
vart mun því einu um að kenna.
Úr Bjarma - S. P.
145