Kirkjuritið - 01.06.1978, Qupperneq 80
þing manna? Ættir þú ekki fremur að
deyja þúsund sinnum? Ættir þú ekki
fremur að bergja annað efnið eða ekk-
ert heldur en að bergja með slíkri
hlýðni ,sem er guðlast og afneitun trú-
arinnar?
Þess vegna ættu þeir að hætta að
ræða um þing sín, en gjöra þetta fyrst:
Að gefa Guði dýrðina aftur í stað guð-
lastsins. Þeir ættu að játa, að þeir
hafi bannað annað efnið sakir læri-
föður síns Satans, að þeir hafi hreykt
sér yfir Guð, formælt orði hans og
hafi steypt svo mörgum í glötun um
svo margar aldir, síðan ættu þeir að
gjöra iðrun sakir þessarar ósegjan-
legu harðstjórnar, grimmdar og guð-
leysis og viðurkenna, að vér höfum
gert rétt, og það, sem meira er, vér
höfum kennt og neytt beggja efnanna
gagnstætt kennisetningum þeirra, höf-
um einskis vænst af þingi þeirra og
þeir ættu að þakka fyrir, að vér höfum
vikið oss undan að fylgja glötun þeirra
og bölvun. Þegar þeir hafa gjört þetta
munum vér gjarna og fúsir virða og
uppfylla setninga þeirra og þing. En á
meðan þeir gera þetta ekki, heldur
halda áfram að krefjast, að vér bíðum
eftir lögboði þeirra, þá munum vér
ekki hlýða á neitt, heldur halda áfram
að kenna og gjöra gagnstætt þeim, og
því fremur sem vér vitum, að þeim
misþóknast það meir. Því að hvers
krefjast þeir með þessari djöfullegu
kröfu nema þess ,að vér setjum þá of-
ar Guði, hefjum orð þeirra yfir Guðs
orð og setjum í Guðs stað hinar viður-
00 Kol. 3:16
styggilegu ófreskjur þeirra sem skurð-
goð? Vér viljum aftur á móti, að allur
heimurinn verði Guði undirgefinn og
þjónustubundinn.
Eg vildi einnig, að vér hefðum sem
flesta söngva í móðurmáli, sem fólkið
syngi í messunni eftir þrepsöngva,
eftir Sanctus og Agnus Dei. Hver efar
að allt fólkið hafi sungið þá hér áður
fyrr, sem kórinn einn syngur nú, eða
svarar biskupi, er hann helgar efnin?
Þessa söngva, sem fyrirsettir væru af
biskupinum með þeim hætti, að hæg*
væri að syngja þá annað hvort strax
eftir latínusöngvana eða einn dagioo
á latínu og hinn á móðurmáli, þangað
til öll messan verður sungin á móður-
máli. En oss vantar skáld eða öllu
heldur eru engin skáld þekkt ennþá.
sem geti sett saman guðrækileg °9
andleg Ijóð (eins og Páll nefnir þau)""
svo vel sé, handa oss, er verðug séu
til að hafa um hönd í Guðs kirkju. Á
meðan fer vel á því að syngja þetta
eftir bergingu: „Guð sé lofaöur og sv°
blessaður, sem sjálfur hefir fætt °sS
o. s. frv.“K~ Sleppa skal þessum hluta-
,,Og það heilaga sakramenti við Kf'
daga endi úr prestsins vígðu hendi
o. s. frv.,“ sem hefir verið bætt við af
einhverjum, sem heiðrað hefir heilag3
Barböru og hefir virt sakramentið lítils
allt sitt líf, og á dauðastundinni sett
von sína á þetta góðverk, svo að hann
geti gengið inn til lífsins án trúar. Þvi
að bæði orð og lag sanna, að þeim er
ofaukið. Auk þessa er svo þetta ákjós*
anlegt: „Nú biöjum vér heilag°n
07 Gott sey gelobet und gebendeyet der unz
selber hat gespeyset etce. Sjá Gradvale 15
og siðan í öllum gröllurum. SungiS meoa
fólkiS gengur innar.
158