Jörð - 01.11.1941, Qupperneq 49
og Halfdan Kjerulf og eru mörg lögin þeirra dýrar perlur. En
það var fyrst Edward Grieg, sem tókst að reisa máttuga og víð-
feðma iist á norsku þjóðlögunum. Hann tók þjóðlögin og slípaði
þau eins og gimstein og greipti síðan í dýra umgjörð, eða hann
samdi lögin sín í anda þjóðlaganna, svo að auðheyrt var, að þau
voru af norsku bergi brotin. Rödd hans var svo máttug og sér-
kennilega fögur, að hún heyrðist um heim allan.
NORÐMENN OG ÚTVARPIÐ
Frh. af bls. 480.
í sérstakri þakkarskuld við bókmenntir Norðmanna......Sumarið
1939 ferðaðist ég í Noregi og mér fannst ég vera heima......
Robert E. Ely: .... Það er mér heiður, að mega ávarpa landa
Nansens og Amundsens.........
John Haynes Holmes: .... Þjóð, sem heitstrengir að láta ekki
kúgast, verður heldur aldrei kúguð.....Yðar málefni er málefni
vort. Þér ijerjist fyrir málstað mannkynsins alls.....
Upton Sinclair: .... Ég hefi verið beðinn að ávarpa norsku þjóð-
ina í útvarpi. Á fjörutiu og sex ára ferli mínum sem rithöfund-
ur og ræðumaður hefi ég aldrei nálgast neitt hlutverk, sem ég
hefi tekið að mér, með meiri auðmýkt......Orð eru ódýr Kalí-
forníu, en í dimniu norræns vetrar og erlendrar harðstjórnar, er
hvert orð þungt hlaðið tilkostnaði..... Alla mina æfi hefi ég
eftir megni verið málsvari mannlegs persónuleika gegn hvers kon-
ar kúgun......Kerfi Nazismans reynir að svifta mannveruna rétt-
inum, til að leita sannleikans og tjá það, sem hún hefir lært...
Hvort mun það takast, að velta þessum æðstu réttindum úr hásæti
og setja Mólokk í staðinn? Þetta í oss, sem vér nefnum samvizku
og Guð, neitar að trúa því...Þér, Norðmenn, eigið gamla mcnn-
ingu og fornar dyggðir....Neytið daglega þessarar andlegu fæðu
eins og hins daglega brauðs. Kennið börnum yðar bænir og söngva
um það, þvi af öllu, sem er árí.ðandi, liggur þó mest á því, að
æskulýð yðar verði ekki stolið..... Kennið þeim fórnfýsi, sann-
leika og frelsis vegna....í landi voru er gamalt orðtak um, að
uppreisn gegn harðstjórn sé hlýðni við Guð. Sá, sem framkvæmir
þetta, mun finna, að með mótspyrnunni kemur kraftur til hennar.
.... Hvað segir ekki Ritningin: „Vertu trúr allt lil dauða og ég
mun gefa þér kórónu lífsins."
Lewis Mumford: .... Það er reynt að halda því að yður, að
lýðfrelsi sé úr sögunni. Trúið því ekki. Nú fyrst er það að byrja
að sýna krafta sína....... Síðustu þrjú árin hefi ég, sem frétta-
Frh. á bls. 490.
483
J ÖRÐ