Prestafélagsritið - 01.01.1927, Page 163
Presíafélagsritið.
Ferðaprestsstarfið.
155
Aldursforseti okkar, séra Einar Jónsson prófastur á Hofi, stýrði fund-
inum og prédikaði við guðsþjónustuna, er hann hófst með. Að henni
lokinni flutti hann minningarerindi um Helga lektor Hálfdánarson, er
100 ár voru liðin frá fæðingu hans. Talaði hann af lotningu um kenni-
föður sinn — og þjóðarinnar um langt skeið. Enda hefir Helgi Hálf-
dánarson vafalaust verið einhver ágætasti maður kirkjunnar á liðinni öld.
Þá var tekið að reifa ýms fundarmál og kjósa nefndir í þau eða skipa.
Fengu allir þannig ærið að vinna.
BreytingartiIIögur voru gerðar við Iög Prestafélagsins, og eru þær nú
orðnar að lögum. Þá óskuðum við þess, að ársskýrsla íslenzku kirkj-
unnar yrði prentuð í Prestafélagsritinu, og lögð mest áherzla á það, er
til hvatningar mætti verða. Aðrar Norðurlanda-kirkjurnar gefa út slíkar
skýrslur, svo að hverjum manni er unt að fylgjast með starfi þeirra, og
eru þær að ýmsu mjög merkar. Þannig ætti einnig að vera hér á landi.
Myndi þá margur sjá víðar gróandi í kirkjulífinu en hann hyggur nú vera
en það eykur þeim djörfung og dug, sem kirkjunni vilja vinna.
Kristindómsfræðsla barna var eitt aðal-málið og mesta vanda-málið.
Hún er víða ónóg. Heimilin varpa þar um of áhyggjum sínum á herðar
kennara og jafnvel prestarnir Iíka. Svo valda víðátta prestakalla og erfið
ferðalög þvf, að þeir geta sumir trauðla veitt þá fræðslu, sem skyldi.
Margir þeirra vilja halda kverkenslunni, en fjöldi foreldra og aðstandenda
barna er orðinn óánægður með núgildandi kver og jafnvel börnin sjálf,
og er þar þvf við ramman reip að draga. Helztu ráðin til að vinna bót
á þessu ástandi virtust okkur vera þessi:
Heimavistarskólar fyrir börn þurfa að rísa í sveitum og standa á
prestssetrunum, þar sem þess er kostur, en prestarnir taki þátt í kenslu
kristinna fræða við þá eða annist hana að öllu leyti. Við kaupstaða-
skóla er sama nauðsyn þess, að prestar hafi kristindómsfræðslu á hendi,
þó því verði ekki alstaðar við komið.
Sunnudagaskólar ættu að vera hér alment eins og í öðrum löndum,
eða sunnudagakensla, sem miðaði að því, að glæða trú hjá börnunum.
Þar sem börn læra ekki kver, mun hennar enn meiri þörf. Reynslan
hefir sannað gildi sunnudagaskólanna.
Nýja barnalærdómsbók verður að semja handa þeim, sem vilja hafa
áfram kver, og vanda til hennar svo sem kostur er.
Æskilegt er, að skýringar við alþýðu hæfi á Nýja-testamentisköflunum
í Barnabiblíunni verði gefnar út til ieiðbeiningar þeim, sem fást við
kristindómsfræðslu barna, og svo öðrum, er Nýja-testamentið Iesa.
Einn af fundardögunum var sunnudagur. Vildum við hyllast til þess
að haga fundinum svo, því að þá gæti fólk sótt hann alment og tekið
þátt í störfum hans. Mikill fjöldi kom víðsvegar að til hádegismessu og
hlýddi svo erindum og umræðum alt til kvölds, eða tók þátt í þeim.
Mesi var talað um samvinnu presta og safnaðarfólks, hversu mikil nauð-