Nýjar kvöldvökur - 01.07.1934, Síða 50
144
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
freyja er komin út úr húsinu, sér hún
ekkert i kringum sig? nema kletta og háa
hamra. Hún snýr nú heim, og er þá liðið
langt á nótt. Var bóndi og heimafólk orð-
ið hrætt um hana og spurði, hvað hana
hefði tafið, en hún sagði engum frá því,
hvert hún hefði farið, eða hvað fyrir
hana hefði komið. En ekki lét hún það
bíða, að láta gullið, sem álfkonan gaf
henni, undir tungurætur Sighvats sonar
síns. Á fjórða degi fékk hann skýrt mál,
sem fullorðnir, og undruðust það aliir.
Komu menn víðsvegar að, til þess að sjá
hann og heyra.
Sighvatur vex nú upp, þar til hann
nær fullorðins aldri. Þá tekur móðir hans
sótt, sem hún finnur, að muni leiða sig
til bana, og lætur kalla son sinn fyrir
sig. Hún segir honum þá upp alla sögu
um það, er hún hjálpaði huldukonunni
og fékk hjá henni gullið, sem gaf honum
málið. Síðast fær hún honum sjóðinn, og
segir honum, að álfkonan muni hafa svo
til ætlazt, að hann eignaðist þann sjóð.
Biður hún hann að geyma leyndarmál
sitt, og segja engum öðrum en börnum
sínum, ef hann eignist nokkur. Síðan
faðmaði hún hann og bað vel fyrir hon-
um, sagði, að hún hefði unnað honum
mest allra barna sinna og mestar áhyggj-
ur borið hans vegna, og mest gert fyrir
framtíð hans. Litlu síðar andaðist hún.
-— Sighvatur varð hinn mesti auðnumað-
ur, og lifði til hárrar elli. Er margt
manna frá honum komið.
A: Jensen verður ekki lengi að eyða
peningunum sínum, eins og hann fer ó-
gætilega með þá. í gærkvöldi sá ég hann
t. d. skrifa þúsund króna ávísun og
kveikja síðan í pípunni sinni með henni.
Bókafréffir.
f haust kemur út ný bók eftir Guðmund
Hagalín, sem heitir Einn af postulunnm
og fleiri sögur. Fáar bækur, sem komið
hafa út á íslenzku á síðari árum, hafa
hlotið eins almennt lof eins og bók Haga-
líns, Kristrún í Hamravik, sem út kom í
fyrra. Sumir ritdómarar hafa talið hana
meðal langbeztu bóka, sem skrifaðar
hafa verið á íslenzka tungu. Þessi nýja
bók Hagalíns mun ekki vekja minni at-
hygli.
Nýkomin er út stór skáldsaga eftir
Jóhannes úr Kötlum, sem heitir Og
björgin klofnuðu. Þetta er fyrsta skáld-
saga þessa þjóðkunna skálds. Mun um
hana talsverður styr standa og marga
mun hún hneyksla. Ritdómur um hana
mun koma í næsta hefti Nýrra Kvöld-
vaka.
Grbna, X. liefti, er nýkomin út.
í haust verður byrjað að gefa út á ís-
lenzku úrval úr heimsbókmenntum barna
og unglinga. Fyrsta bókin er Kak eftir
Vilhjálm Stefánsson. Er hún talin einna
mest lesin bamabók í Ameriku.
Bernskmnál, ný bamalesbók, eftir hinn
góðkunna kennara, Egil Þorláksson, er í
prentun.
Þá má enn geta bókar, sem kemur út
í næsta mánuði. Eru það Æfintýraleikir
eftir Ragnheiði Jónsdóttur í Hafnar-
firði. Barnaleikabók hefur vantað á ís-
lenzku, en þessi bók bætir úr þeirri vönt-
un. Mun hún kærkomin til Jesturs og
leika öllum bömum.
I fyrra kom út á sænsku, eftir einn
frægasta rithöfund Svía, Pár Lagerkvist,
saga, er vakti meiri athygli, og var meira
lesin, en nokkur önnur bók, er út kom
í Svíþjóð á því ári. í haust kemúr hún
út í íslenzkri þýðingu. Sagan heitir Böð-
ullinn.