Tíbrá - 01.01.1893, Síða 16

Tíbrá - 01.01.1893, Síða 16
12 um litið uppi i trje, sem var gagnvart honum, og sá gamlan hrafn sitja þar, og við liliðina á honum var hreiður, sem líktist lurkahrúgu. »Þetta er efnilegur drengur«, sagði hrafninn. »Hann segist ekki vilja ganga í skóla. Þetta er dáindis fallegur letingi«. Og allir hrafnarnir, sem voru í grenndinni, fóru að segja krá, krá, krá, eins og þeir væru að hlæja að Tómasi. »Hvað er þetta, þú vilt ekkert vinna«, sagði hrafninn aptur. »Lati drengur, þú ert verri en fuglarnir. Heldurðu að jeg sje iðjulaus? Horfðu á hreiðrið mitt; hvernig lízt þjer á það ?« »Jeg þori að segja að það er dáfallegt«, sagði Tómas, »en jeg vildi ekki eiga að búa i því«. »Nei, af því að þú ert bara drengur og ekki eins hygginn og hrafn«, svaraði þessi nýi vinur hans; og allir hrafnarir sögðu aptur krá, krá, krá, eins og þeir hugsuðu það sama. »Veiztu hvers vegna hrafninn er vitrari en latur drengur?« spurði hrafninn, vjek höfð- inu til annarar hliðar og horfði niður á Tómas með sinu tinnusvarta auga? »Nei«, sagði Tpmas. »Jeg hjelt, að drengir væru vitrari en hrafnar«. »Það hjelztu*, sagði hrafninn, »en veiztu nokkuð um það. Geturðu byggt hús handa þjer ?«

x

Tíbrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíbrá
https://timarit.is/publication/515

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.