Tíbrá - 01.01.1893, Page 21

Tíbrá - 01.01.1893, Page 21
17 ekki hafa getað þekkt þA í sundur, og hún Ijet þá nærri því aldrei sjást; og þegar móður- systur hennar og frændkonur heimsóttu hana, sögðu þær: »Iíví lofar Sigriður engum að sjá þá‘?« og fóru óánægðar í hurtu. Þessir svörtu þjónar voru skínandi litlar stjörnur, sem lærðu skjótt aðskemmta Sigríði. Eitt hið fyrsta, sem þeir gerðu fyrir hana, var að sýna henni eld- inn, og henni þótti hann mjög fallegur. Sig- ríður átti tvo aðra þjóna, sem voru tvíburar. Þeir vissu svo lítið, hvað þeir áttu að gera, að þeir klóruðu og lömdu hana í framan. Og móðir hennar sagði, að hún yrði að binda þá, ef þeir ljeti þannig; en þó að þeir vissu ekki, hvernig þeir áttu að haga sjer, þá voru þeir mjög fallegir, líkir rósablöðum, eða einhverju öðru rauðu og mjúku. Sigríður átti enn þá tvo þjóna, sem hún veitti enga eptirtekt nokkura mánuði; þeir vissu heldur ekki eins iijótt og sumir af hinum, hvernig þeir áttu að þjóna henni; þeir voru feitir og voru á sííelldu iði og kunnu ekki annað, en að stinga holur í sokkana hennar. Sigriður átti enn þá þjóna, sem voru tviburar og mjög nytsamir, þvi án þeirra hefði hún aldrei heyrt móður sína syngja eða föður sinn biístra, eða heyrt ldsu segja mjá eða hund- inn segja vá, vá. Og hún átti enn þá einn lítinn þjón, sem hún ljet engan sjá, og hið eina, sem hann gerði lengi vel, var að hjálpa 2

x

Tíbrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíbrá
https://timarit.is/publication/515

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.