Tíbrá - 01.01.1893, Blaðsíða 61
57
og vætti fætur og' knje konungsins. Þá stóð-
Knútur konungur upp og mælti: »Vita skuluð
þjer, allir ibúar jarðarinnar, að máttur manns-
ins er lítill, og að enginn er þess verður að
bera konungsnafn, nema alvaldur guð, er tií
eilífðar stýrir öllu eptir boði sínu bæði á himnf
og jörðu«. Þetta nægði til að láta hræsnarana
skammast sín. Til þess að sýna guði sínum
enn mciri lotningu, tók hann af sjer kórónuna,
þá er kom heim, setti hana á líkneski Krists í
kirkjunni í Winchester og bar hana aldrei
framar.
Knútur konungur skrifaði einhverju sinni
nokkrum valdsmönnum landsins á þessa leið:
»Jeg tilkynni yður hjer með, að jeg hef auð-
mjúklega lofað alvöldum guði að breyta ávallt.
eins og skyldan býður, og stjórna ríkjum mín-
um með guðsótta og rjettlæti og fella rjetta og
sanngjarna dóma í öllum málum; hjeðan í frá
vil jeg bæta allt það, er jeg ef til vill hef
framið rangt og athugunarlaust í æskunni, eða
hafi jeg vanrækt að gera það, sem mjer bar
að gera. Sakir þess slcipa jeg og segi ráðgjöf-
um minum, sem jeg hef falið á hendur að ann-
ast málefni ríkisins, að feir alls ekki, hvorki
af ótta fyrir mjer, eða til þess að ná hylli heldri
manna, megi fremja nokkurn órjett eða leyfa,.
heldur láti þeir alla, jafnt háa sem lága, ná
rjetti sínum og njóta verndar laganna, sva