Tíbrá - 01.01.1893, Síða 64
Útdráttur úr ræöu
hins nafnfræga ræðuskörungs C. H. Spurgeons,
seni hann hjelt fyrir nokkrum árum í tjaldbúð
erkibiskupsins í Lundúnaborg.
Draumur Gideons um byggkökuna.
(Dóm. bók. 7. kap. 13.—14. v.).
Þegar Gideon var kominn að herbúðum
Medianita, sjá þá var einn maður að segja öðr-
um draum sinn, og hann sagði:
»Mig dreymdi draum. Mjer þótti byggkaka
velta að herbúðum Medianita, og þegar hún
kom að aðalherbúðinni, veiti hún henni um,
svo það varð efst, sem áður var neðst«. Þá
svaraði hinn : »Það þýðir ekkert annað en sverð
Tsraelitans, Gideons Jóassonar. Guð hefur gefið
Medianita og herbúðir þeirra á hans vald«.
Medianitar, sem voru að brjóta Israelsland undir
sig, voru flökkumenn; þeir ijetu ekkert á sjer
bera á meðan ; menn sáðu og pJægðu lönd sín oít
iofuðu þeim að lifa í voninni um ríkulega upp-
skeru, en undir eins og nokkuð ætilegt spratt
upp, komti þeir eins og engisprettur og upp-
rættu allt.
Israelsriki, sem var einu sinni svo voldugt,
hafði svo mjög hnignað, að börn þess orkuðu
ekki að reka þessa ræningja af' höndum sjerí
Já, því var svo rnjög hnignað, að borgir og þorp
lágu f rústum, en íbúarnir leituðu sjer hælis í
árfarvegum, hömrum og klettaskorum. Sökum