Tíbrá - 01.01.1893, Page 74
70
Esdraelon, sem er hulinn í barmi yðar; þar
hafast við ótölulegar syndir og ástríður, sem
eins og engisprettur eta upp allan gróður og
reka hugrekki og gleði á flótta. Þjer andvarpið
undan þessum óboðnu gestum, en getið ekki
losazt við þá. Jeg ræð yður til að reyna krapt
trúarinnar; yðar eigin tilraunir hafa reynzt
gagnslausar. Reynið þá trúna, fyrst þjer hafið
reynt allt annað, sem í yðar valdi hefur staðið,
og hvorki tár, bænir, heiti, nje sjálfsafneitun
hefur megnað að reka óvininn á flótta.
Reynið þá byggköku trúarinnar. Trúið á
Jesú Krist, í honum fáið þjer frelsi, í honum
fáið þjer krapt til að verða guðsbörn! Reynið
trúna, og hún mun niðurbrjóta vald syndar og
efasemda; prófið opt og iðulega krapt trúarinnar,
því að hún er kröptug og verkar alla hluti, sje
hún rjett; og vitum að drottinn er máttugur
að gera langt fram yfir það, sem vjer biðjum
um, eða oss hefur jafnvel dottið í hug að biðja
um.
Stöndum þá hver og einn með brennandi
skriðljós sannleikans í höndum vorum og með
lúður friðarlærdómsins við varir vorar, og lát-
um oss svo umkringja herflokka hins illa með
þessu herópi.
Kristur! og hann krossfestur!
Yjer vitum ekkert annað til að prjedika
meðal mannanna, en dauðann, blóðið, upprisuna,